Ferill 161. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 228 — 161. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um gjöld sem tengjast umferð.
Frá Elsu Láru Arnardóttur.
1. Hversu miklir fjármunir skila sér í ríkissjóð af bensíngjaldi, bifreiðagjöldum og öðrum gjöldum tengdum umferðinni?
2. Hversu stór hluti af þeim fjármunum hefur verið notaður í vegakerfið á undanförnum árum?
Skriflegt svar óskast.