Ferill 164. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 231  —  164. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um Landsvirkjun.

Frá Silju Dögg Gunnarsdóttur.


     1.      Hve miklum fjármunum skilaði Landsvirkjun til þjóðarbúsins á árunum 2014, 2015 og 2016?
     2.      Hver er stefna ríkisstjórnarinnar varðandi eignarhald á Landsvirkjun?
     3.      Kemur til greina að einkavæða Landsvirkjun að hluta eða öllu leyti?


Skriflegt svar óskast.