Ferill 165. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 232  —  165. mál.




Fyrirspurn


til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um útflutning á raforku.

Frá Silju Dögg Gunnarsdóttur.


     1.      Hefur ráðherra mótað stefnu varðandi útflutning á raforku? Ef svo er, hver er sú stefna?
     2.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að sæstrengur verði lagður og útflutningur hafinn á raforku?
     3.      Hefur ráðherra átt fundi með aðilum sem hafa áhuga á lagningu sæstrengs frá Íslandi í þeim tilgangi að selja raforku til Evrópu?


Skriflegt svar óskast.