Ferill 72. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 243 — 72. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Eygló Harðardóttur um framsals- og fangaskiptasamninga.
1. Hver er staða vinnu við gerð framsals- eða fangaskiptasamninga á milli Íslands og Brasilíu?
Eins og fram kom í svari dómsmálaráðherra á Alþingi 6. febrúar sl. við munnlegri fyrirspurn um framsal íslenskra fanga (þskj. 130, 73. mál), hefur sendiráð Íslands í Washington verið í samskiptum við brasilísk stjórnvöld um málið. Ljóst er að vilji beggja ríkja þarf til að koma á samningi. Að öðru leyti vísast til framangreinds svars dómsmálaráðherra, sem fer með málefni fanga og flutning dæmdra manna.
2. Er unnið að gerð slíkra samninga við fleiri lönd og ef svo er, hvaða lönd eru það?
Ekki er unnið að gerð annarra slíkra samninga.