Ferill 178. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 249 — 178. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um æskulýðsmál.
Frá Viktori Orra Valgarðssyni.
1. Hvernig er háttað vinnu að æskulýðsstefnu íslenskra stjórnvalda, hvaða efnislegum breytingum hefur stefnan tekið frá því að drög að henni voru lögð fram í nóvember 2012 og hvenær má eiga von á því að stefnan öðlist formlega gildi?
2. Hefur ráðherra fylgt eftir ábendingum sem beint var til ráðuneytisins í mars 2013 í skýrslu Ríkisendurskoðunar um ráðstöfun framlaga til æskulýðsmála? Hefur ráðuneytið gert rekstrarsamninga við helstu æskulýðssamtök landsins og þá hvaða samtök?
Skriflegt svar óskast.