Ferill 186. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 257 — 186. mál.
Fyrirspurn
til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um starfsemi Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á landsbyggðinni.
Frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.
1. Hvað eru starfsmenn Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands margir og hversu hátt hlutfall þeirra starfar á landsbyggðinni?
2. Hvar á landsbyggðinni eru starfsmenn Nýsköpunarmiðstöðvarinnar og hversu margir eru á hverjum stað?
3. Hve stór hluti þess fjár sem varið er til verkefna Nýsköpunarmiðstöðvar gengur til:
a. verkefna á landsbyggðinni í heild,
b. verkefna í hverjum landsfjórðungi?
4. Hvaða atriði eru einkum ráðandi þegar teknar eru ákvarðanir um verkefni á landsbyggðinni og starfsmannafjölda og starfshlutfall þar?
Skriflegt svar óskast.