Ferill 47. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 307  —  47. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Óla Birni Kárasyni um launakostnað og fjölda starfsmanna.

     1.      Hvernig hefur launakostnaður vegna starfsmanna Stjórnarráðsins þróast frá árinu 1990? Svar óskast sundurliðað eftir árum á verðlagi hvers árs og á föstu verðlagi 2016.
     2.      Hvernig hefur hlutfall launakostnaðar Stjórnarráðsins af heildarlaunakostnaði ríkissjóðs þróast frá árinu 1990?
     3.      Hvernig hefur launakostnaður ríkissjóðs í heild þróast frá árinu 1990? Svar óskast sundurliðað eftir árum á verðlagi hvers árs og á föstu verðlagi 2016.
     4.      Hvernig hefur hlutfall heildarlaunakostnaðar ríkisins af frumútgjöldum þróast frá árinu 1990?
    Svarið var unnið úr upplýsingum úr fjárhagskerfi ríkisins og miða var við launakostnað á aðalskrifstofum Stjórnarráðsins og heildarlaunakostnað A-hluta ríkissjóðs árin 1990 til 2016. Vegna þess hve langt árabil um ræðir er rétt að taka fram nokkra þætti sem hafa haft veruleg áhrif á þróun launakostnaðar. Þar má nefna að með gildistöku laga um fjárreiður ríkisins í ársbyrjun 1998 kom ýmsar stofnanir inn í A-hluta ríkisjóðs sem áður stóðu fyrir utan hann. Rekstur grunnskóla var fluttur frá ríki til sveitarfélaga í ársbyrjun 1997 og síðan voru málefni fatlaðra einnig flutt frá ríki til sveitarfélaga í ársbyrjun 2011. Bæði grunnskólinn og málefni fatlaðra eru mannfrek verkefni og hafði því tilflutningurinn veruleg áhrif til lækkunar á launagreiðslum A-hluta ríkissjóðs. Í töflunni hér á eftir má finna svör við 1.–4. lið fyrirspurnarinnar. Allar tölur eru í milljónum króna.

Ár Launakostnaður v/starfsmanna Stjórnarráðsins Launakostnaður v/ starfsmanna Stjórnarráðsins á föstu verðlagi 2016 Hlutfall launakostnaðar Stjórnarráðsins af heildarlaunakostnaði ríkissjóðs Launakostnaður ríkissjóðs í heild Launakostnaður ríkissjóðs í heild á föstu verðlagi 2016 Hlutfall heildarlaunakostnaðar ríkisins af frumútgjöldum*
1990 689 2.061 2,3% 29.806 89.171 31,3%
1991 865 2.423 2,6% 33.735 94.496 31,5%
1992 890 2.402 2,6% 34.690 93.676 33,2%
1993 917 2.380 2,6% 35.977 93.331 34,0%
1994 946 2.418 2,5% 37.583 96.065 33,7%
1995 1.030 2.589 2,6% 39.705 99.791 35,0%
1996 1.161 2.854 2,8% 41.653 102.379 34,2%
1997 1.258 3.037 3,1% 40.691 98.240 34,0%
1998 1.491 3.540 2,9% 51.101 121.353 29,4%
1999 1.625 3.732 3,0% 53.761 123.430 29,3%
2000 1.798 3.930 3,2% 56.358 123.217 26,4%
2001 1.993 4.084 3,1% 64.839 132.884 30,8%
2002 2.210 4.321 3,0% 73.053 142.858 29,1%
2003 2.485 4.758 3,2% 78.363 150.073 29,5%
2004 2.710 5.028 3,3% 82.032 152.210 28,7%
2005 2.947 5.256 3,3% 88.878 158.495 30,1%
2006 3.190 5.328 3,3% 97.823 163.402 30,1%
2007 3.542 5.633 3,3% 106.121 168.777 28,3%
2008 3.879 5.487 3,3% 118.616 167.806 18,2%
2009 4.168 5.265 3,5% 119.976 151.554 24,3%
2010 4.081 4.891 3,4% 118.959 142.574 22,3%
2011 4.386 5.055 3,7% 119.947 138.239 23,5%
2012 4.736 5.189 3,7% 127.928 140.163 26,3%
2013 4.872 5.138 3,6% 135.978 143.425 26,3%
2014 4.925 5.091 3,4% 144.217 149.080 25,6%
2015 5.239 5.329 3,3% 160.160 162.892 27,3%
2016 5.807 5.807 3,4% 171.161 171.161
*Frumútgjöld ársins 2016 liggja ekki fyrir.


     5.      Hvernig hefur fjöldi starfsmanna ríkisins, ríkisstofnana og ríkisfyrirtækja þróast frá árinu 1990? Svar óskast sundurliðað eftir árum og að tekið verði tillit til færslu verkefna og starfsmanna frá ríki til sveitarfélaga.
    Í töflunni hér á eftir má sjá fjölda starfsmanna ríkisins sem eru í launakerfi ríkisins á hverjum tíma. Taka þarf tillit til stærstu kerfisbreytinganna í launakerfi ríkisins á tímabilinu þegar horft er á þróun í fjölda starfsmanna ríkisins.

Ár Fjöldi starfsmanna ríkisins* Skýring á stórum kerfisbreytingum í launakerfi ríkisins
1990 23.772
1991 24.525
1992 24.355
1993 24.319
1994 24.254
1995 24.463
1996 23.210 Í ársbyrjun 1997 flyst rekstur grunnskóla frá ríki til sveitarfélaga.
1997 17.889
1998 18.018
1999 18.311 Árið 2001 fjölgar starfsmönnum ríkisins vegna sameiningar Sjúkrahúss Reykjavíkur og Landspítala.
2000 18.540
2001 20.117
2002 20.298
2003 20.620
2004 20.742
2005 20.475 Árið 2006 koma 2.000 starfsmenn heilbrigðisstofnana inn í launakerfi ríkisins. Ekki fjölgun á stöðugildum heldur færsla á milli kerfa.
2006 22.633
2007 24.103
2008 23.806
2009 23.161
2010 22.543
2011 21.096 Árið 2011 flytjast um 1.500 starfsmenn sem unnu við málefni fatlaðra frá ríkinu til sveitarfélaga.
2012 21.045
2013 21.129
2014 21.204
2015 21.290
2016 21.155
*Fjöldi kennitalna 12 mánaða meðaltal.