Ferill 109. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 314  —  109. mál.




Svar


umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Orra Páli Jóhannssyni um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.


     1.      Hvenær má vænta þingsályktunartillögu um stefnumarkandi landsáætlun til tólf ára um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum?
    Unnið er að áætluninni og umhverfismati hennar með verkefnastjórn landsáætlunar. Miklu skiptir að samhliða tillögunni liggi fyrir greining og áætlun um fjárþörf og tillaga að fjármögnun þess, en unnið er að því samhliða. Samhliða 12 ára stefnumarkandi áætlun er unnið að gerð 3 ára verkefnaáætlunar fyrir árin 2018–2020.

     2.      Liggur fyrir skammtímaáætlun um uppbyggingu innviða á árinu 2017, sbr. ákvæði til bráðabirgða II í lögum nr. 20/2016, og ef svo er, hvenær verður hún birt og er hún að fullu fjármögnuð í fjárlögum þessa árs?
    Drög að skammtímaáætlun um uppbyggingu innviða á árinu 2017 voru auglýst í október 2016 og send til umsagnar. Enn liggur ekki fyrir endanleg niðurstaða í fjármögnun verkefna hennar en gert er ráð fyrir að þau séu að hluta til fjármögnuð í fjárlögum þessa árs, annars vegar í gegnum úthlutun Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða og hins vegar í gegnum fjárheimildir stofnana. Þegar það liggur fyrir verður áætlunin birt í endanlegum búningi.

     3.      Hver er afstaða ráðherra til þess að verja fjármunum frekar til landvörslu en annarra verkefna á þeim svæðum þar sem uppbygging innviða gengur hægt?
    Landvarsla er eitt mikilvægasta verkfærið sem við höfum í kistunni þegar kemur að því að taka á móti ferðamönnum og fræða þá um hvernig ganga eigi um landið okkar. Þannig getur landvarsla hjálpað á stöðum þar sem uppbygging innviða gengur hægt og þá er landvarsla ekki síður mikilvæg þar sem uppbygging þarf að vera í lágmarki m.t.t. þess að viðhalda óbyggðaupplifun útivistarfólks og annarra ferðamanna. Þar skiptir fræðsla og leiðsögn landvarða miklu máli. Markmiðum laga nr. 20/2016, um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum, má í mörgum tilvikum mæta með aukinni landvörslu, ekki síst þegar sýnt er að uppbygging mun ekki ná að halda í við aukið álag frá ári til árs á tilteknum svæðum. Meta þarf auk þess, sbr. 3. gr. laga nr. 20/2016, hvort og þá hvers konar uppbygging sé æskileg á tilteknum stað. Áhersla á landvörslu gefur auk þess meira ráðrúm til að leggja drög að vandaðri uppbyggingu sem fellur vel að heildarsvipmóti lands, styður við verndargildi þess og gerir í stakk búið taka á móti fleiri gestum.
     4.      Telur ráðherra að efla þurfi landvörslu á vegum opinberra stofnana og sveitarfélaga vegna aukinnar ferðamennsku og hver eru viðhorf ráðherra til samstarfs fyrrnefndra aðila á þessu sviði?
    Í ljósi mjög vaxandi ferðamannafjölda er mjög mikilvægt að halda áfram að efla landvörslu. Stofnanir hafa lögbundið hlutverk gagnvart svæðum í þeirra umsjá. Það er mjög áhugavert og hluti af því verklagi sem verið er að innleiða með nýjum lögum um innviðauppbyggingu að vinna að auknu samstarfi stofnana og sveitarfélaga vegna landvörslu á svæðum, sérstaklega sem falla utan umsjár stofnana, til að mynda fjölsóttra náttúrusvæða sem ekki njóta friðlýsingar eða mikilvægra útivistarsvæða í héraði. Það er öllum til hags ef stofnanir og sveitarfélög eiga með sér skilvirkt samstarf um landvörslu á umræddum svæðum.

     5.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að landvarsla verði efld í takt við fjölgun ferðamanna þegar á þessu ári? Stefnumarkandi landsáætlun til tólf ára um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum er í vinnslu og er stefnt að því að hægt verði að leggja hana fram í vor.
    Já, ráðherra hyggst beita sér fyrir aukinni landvörslu í ár með það að markmiði að fjölga landvörðum verulega sem viðbragði við mikilli aukningu ferðamanna. Þegar liggur fyrir aukning á landvörslu fyrir árið 2017 þar sem fjármunum hefur verið forgangsraðað til verkefnisins af útgjaldasvigrúmi málefnasviðsins umhverfismál. Enn liggur ekki fyrir hvert umfang frekari aukningar geti orðið.