Ferill 228. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 320  —  228. mál.




Fyrirspurn


til félags- og jafnréttismálaráðherra um skuldastöðu heimilanna og fasteignaverð.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hvað má gera ráð fyrir að afskriftir húsnæðisskulda nemi háu hlutfalli og fjárhæðum af batnandi skuldastöðu heimilanna? Hvað má gera ráð fyrir að „leiðréttingin“ vegi þar þungt? Svar óskast sundurliðað eftir landshlutum.
     2.      Hver hefur hækkun fasteignaverðs verið í einstökum landshlutum frá árinu 2008?
     3.      Hvað telur ráðherra einkum skýra batnandi skuldastöðu heimilanna annað en hækkun húsnæðisverðs? Svar óskast sundurliðað eftir landshlutum.


Skriflegt svar óskast.