Ferill 315. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 433 — 315. mál.
Fyrirspurn
til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um stóriðju.
Frá Oddnýju G. Harðardóttur.
1. Hvaða starfsemi fellur undir skilgreininguna ,,mengandi stóriðja“ sem er að finna í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar?
2. Telst sú starfsemi sem losar koltvísýring en hefur fengið úthlutað losunarheimildum vera mengandi?
3. Hvaða starfsemi fellur undir skilgreininguna stóriðja?
4. Við hvaða fyrirtæki hafa verið gerðir fjárfestingarsamningar eftir að lög um ívilnanir til nýfjárfestinga, nr. 99/2010, tóku gildi?
5. Hver fyrirtækja, sem gerðir hafa verið slíkir fjárfestingarsamningar við, stunda starfsemi sem fellur undir skilgreininguna á mengandi stóriðju?
6. Er fiskeldi í opnum sjókvíum talið til mengandi stóriðju?
7. Hvaða fyrirmæli hefur ráðherra gefið nefnd um veitingu ívilnana til nýfjárfestinga vegna stefnubreytingar stjórnvalda?
Skriflegt svar óskast.