Ferill 317. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 435  —  317. mál.




Fyrirspurn


til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um úthaldsdaga Hafrannsóknastofnunar.

Frá Gunnari I. Guðmundssyni.


     1.      Hversu margir hafa árlegir úthaldsdagar Hafrannsóknastofnunar verið frá árinu 2013, sundurliðað eftir árum og skipum, og hversu marga af þeim hefur Hafrannsóknastofnun verið við rannsóknarstörf?
     2.      Hversu oft hafa rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar tekið eldsneyti, þ.m.t. á Íslandi, sundurliðað eftir dagsetningu, löndum og magni?
     3.      Hversu marga daga hefur Hafrannsóknastofnun ekki sinnt rannsóknarstörfum vegna eldsneytistöku annars staðar en á Íslandi?


Skriflegt svar óskast.