Ferill 339. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 464 — 339. mál.
Fyrirspurn
til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um öryggismál í Hvalfjarðargöngum og við þau.
Frá Bjarna Jónssyni.
1. Hvaða reglur gilda um öryggismál í Hvalfjarðargöngum, svo sem varðandi lýsingu, vegmerkingar og loftræstingu? Eru þessar reglur aðgengilegar almenningi, hver ber ábyrgð á framkvæmd umferðar- og öryggismála í Hvalfjarðargöngum og hver hefur eftirlit með þeim?
2. Hvernig er í aðalatriðum verka- og hlutverkaskipting Vegagerðarinnar og þjónustuaðila við rekstur og viðhald Hvalfjarðarganga?
3. Er ráðherra kunnugt um kvartanir vegfarenda yfir lélegu ástandi vegmerkinga í Hvalfjarðargöngum, skorti á lýsingu og loftræstingu og aðrar ábendingar um öryggisþætti sem þyrftu úrbóta við og hver er afstaða ráðherra til þessa?
4. Hver er veghaldari Hvalfjarðarganga og hver er staða ganganna í vegaskrá, sbr. 7. gr. vegalaga, nr. 80/2007?
5. Á hve löngum kafla Vesturlandsvegar, frá Þingvallavegamótum að Borgarnesi, er óbrotin miðlína þannig að framúrakstur er bannaður og hve stór hluti er það af heildarvegalengdinni milli þessara staða, að Hvalfjarðargöngum frátöldum?
Skriflegt svar óskast.
Greinargerð.