Ferill 343. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 468  —  343. mál.




Fyrirspurn


til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um skrifstofu- og stjórnunarkostnað Spalar o.fl.

Frá Bjarna Jónssyni.


     1.      Hver hefur undanfarin tíu ár verið árlegur skrifstofu- og stjórnunarkostnaður móðurfélagsins Spalar hf. annars vegar og rekstrarfélagsins Spalar ehf. hins vegar?
     2.      Hve miklu hafa árleg stjórnarlaun félaganna numið á sama tíma, hver er starfsmannafjöldi félaganna nú og hver hefur meðalfjöldi þeirra verið undanfarinn áratug?


Skriflegt svar óskast.