Ferill 352. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 478  —  352. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og menningarmálaráðherra um fjárframlög til háskóla og stöðu háskóla utan Reykjavíkur.

Frá Bjarna Jónssyni.


     1.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að framlög ríkisins til háskóla verði aukin þannig að þau nái meðaltali OECD-ríkjanna og verði sambærileg við framlög til háskóla á Norðurlöndum árið 2020, eins og nýleg stefnumörkun sem unnin var á vegum Vísinda- og tækniráðs gerir ráð fyrir?
     2.      Hver eru áform ráðherra til fjárveitinga til háskóla utan Reykjavíkur, þ.e. Háskólans á Akureyri, Háskólans á Bifröst, Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri og Háskólans á Hólum í Hjaltadal?
     3.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að eyða óvissu, sem ríkt hefur undanfarin ár, um stöðu háskóla utan Reykjavíkur og styrkja og tryggja starfsemi þeirra þannig að þeir geti vaxið í sínum heimabyggðum?
     4.      Telur ráðherra að auka beri hlut sérhæfðs háskólanáms utan þéttbýlisins á suðvesturhorni landsins og ef svo er, á hvaða sviðum?


Skriflegt svar óskast.