Ferill 236. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 596  —  236. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (frestun réttaráhrifa o.fl.).

(Eftir 2. umræðu, 6. apríl.)


1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 35. gr. laganna:
     a.      Í stað 1. málsl. 2. mgr. koma þrír nýir málsliðir, svohljóðandi: Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. frestar kæra ekki réttaráhrifum ákvörðunar Útlendingastofnunar um að útlendingur skuli yfirgefa landið í þeim tilvikum þegar Útlendingastofnun hefur metið umsókn hans bersýnilega tilhæfulausa og hann kemur frá ríki sem er á lista stofnunarinnar yfir örugg upprunaríki, sbr. b-lið 1. mgr. og 2. mgr. 29. gr. Hið sama gildir um ákvörðun sem Útlendingastofnun tekur samkvæmt lokamálslið þessarar málsgreinar. Berist kærunefnd útlendingamála beiðni um frestun réttaráhrifa á ákvörðun Útlendingastofnunar eða kæra á ákvörðun Útlendingastofnunar um að fresta ekki réttaráhrifum skal nefndin vísa frá slíku erindi.
     b.      3. mgr. fellur brott.

2. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 70. gr. laganna:
     a.      Í stað 2. málsl. 1. mgr. koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Skilyrði þess er að makinn hafi rétt til fjölskyldusameiningar samkvæmt þessum kafla og að hann sé annaðhvort í hjúskap eða sambúð. Sambúð skal hafa varað lengur en eitt ár.
     b.      Orðin „hjúskapur eða“ í 2. mgr. falla brott.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.
    Við gildistöku laga þessara fellur brott ákvæði til bráðabirgða í lögunum.