Ferill 343. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 636  —  343. mál.




Svar


samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við fyrirspurn frá Bjarna Jónssyni um skrifstofu- og stjórnunarkostnað Spalar o.fl.


     1.      Hver hefur undanfarin tíu ár verið árlegur skrifstofu- og stjórnunarkostnaður móðurfélagsins Spalar hf. annars vegar og rekstrarfélagsins Spalar ehf. hins vegar?

Ár Kostnaður, kr.
2007 221.322
2008 239.603
2009 257.618
2010 272.691
2011* 360.462
2012 337.853
2013 324.561
2014 329.599
2015 384.009
2016 420.785
*15 mánuðir


    Hækkunin á að stærstum hluta rætur að rekja til aukins rekstrarkostnaðar vegna ganganna.
Móðurfélag Spalar er ekki með rekstur. Tilgangur þess var að stofna og eiga Spöl ehf. sem á og rekur göngin. Líta verður til reksturs ganganna og skrifstofu- og stjórnunarkostnaðar saman þar sem ýmsir kostnaðarliðir tengjast hvoru tveggja eins og t.d. flestir starfsmenn fyrirtækisins, ýmsir verktakar o.fl.

     2.      Hve miklu hafa árleg stjórnarlaun félaganna numið á sama tíma, hver er starfsmannafjöldi félaganna nú og hver hefur meðalfjöldi þeirra verið undanfarinn áratug?

Ár Kostnaður, kr. Kostnaður, kr.
Móðurfélag
Spölur hf.
Rekstrarfélag Spölur ehf.
2007 420.000 2.374.000
2008 453.000 2.567.000
2009 480.000 2.709.000
2010 456.000 2.606.000
2011 474.000 2.686.000
2012* 519.000 2.947.000
2013 519.000 2.947.000
2014 540.000 3.066.000
2015 555.000 3.156.000
2016 588.000 3.344.000
*15 mánuðir

    Í hvorri stjórn hafa ávallt setið fimm fulltrúar. Árið 2007 voru 16 starfsmenn í 14,3 stöðugildum en árið 2016 voru 17 starfsmenn í 15 stöðugildum. Á skrifstofu bættist við starfsmaður í hlutastarfi, en á móti sparaðist aðkeypt þjónusta.