Ferill 345. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 637  —  345. mál.




Svar


samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við fyrirspurn frá Bjarna Jónssyni um Vesturlandsveg.


     1.      Hvenær er áformað að styrkja og breikka Vesturlandsveg frá Kjalarnesi í Borgarnes og leggja „tvo plús einn veg“?
    Áætlaður kostnaður við að breikka Hringveg frá Kollafirði að Hvalfjarðargöngum í „2+1“-veg er um 3 milljarðar kr. Í samgönguáætlun 2015–2018 sem samþykkt var á Alþingi sl. haust voru áætlaðar 700 millj. kr. til framkvæmdarinnar á árinu 2018. Í þingsályktunartillögu að samgönguáætlun 2015–2026 er gert ráð fyrir að þessari breikkun verði lokið á öðru tímabili áætlunarinnar 2019–2022.

     2.      Hver er áætlaður kostnaður við breikkun og styrkingu Vesturlandsvegar frá Kjalarnesi í Borgarnes?
    Áætlaður kostnaður við að breikka Hringveg frá Hvalfjarðargöngum að Borgarfjarðarbraut, sem er um 32 km að lengd, er á bilinu 7–10 milljarðar kr. Ekki liggur fyrir áætlun um hvenær ráðist verður í þær framkvæmdir en þær eru ekki í áðurnefndri þingsályktunartillögu að samgönguáætlun 2015–2026.