Ferill 463. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 641 — 463. mál.
Fyrirspurn
til félags- og jafnréttismálaráðherra um greiðslur vegna fæðinga.
Frá Andrési Inga Jónssyni.
1. Hversu margir foreldrar fengu greitt fæðingarorlof annars vegar og fæðingarstyrk hins vegar á árunum 2012–2016? Óskað er eftir sundurliðuðum upplýsingum eftir ári, kyni, tekjubili og tegundum fæðingarstyrkja.
2. Hversu margir foreldrar fengu hámarksgreiðslu í fæðingarorlofi á framangreindu tímabili? Óskað er eftir sundurliðuðum upplýsingum eftir ári og kyni.
3. Hve margir foreldrar fengu hvorki greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði né greiddan fæðingarstyrk árin 2012–2016 og hvað olli því? Óskað er eftir sundurliðuðum upplýsingum eftir ári og kyni.
4. Hver hefði orðið kostnaður ríkisins af því að tryggja öllum framangreindum hópum ígildi lágmarkslauna á hverjum tíma? Óskað er eftir sundurliðuðum upplýsingum eftir ári og kyni.
Skriflegt svar óskast.