Ferill 475. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 658  —  475. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og menningarmálaráðherra um diplómanám þroskahamlaðra í myndlist o.fl.

Frá Svandísi Svavarsdóttur.


     1.      Verður Myndlistaskólanum í Reykjavík tryggt fé til að halda úti diplómanámi í myndlist fyrir fólk með þroskahömlun?
     2.      Sér ráðherra fyrir sér breytingar á hlutverki símenntunar- og þekkingarmiðstöðvarinnar Fjölmenntar þegar þjónustusamningur um rekstur hennar rennur út um næstu áramót?
     3.      Hver er skoðun ráðherra á gildi símenntunar fyrir fatlað fólk og hvernig telur ráðherra að standa eigi að sí- og endurmenntun fatlaðra með tilliti til fjármögnunar og framkvæmdar?