Ferill 410. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 664 — 410. mál.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög (rafræn fyrirtækjaskrá o.fl.).
Frá efnahags- og viðskiptanefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið. Umsagnir bárust frá Félagi atvinnurekenda, ríkisskattstjóra og Viðskiptaráði Íslands. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum um tilkynningar til fyrirtækjaskrár vegna undirbúnings rafrænnar fyrirtækjaskrár og ákvæðum um skýrslu endurskoðenda eða skoðunarmanna í örfélögum. Umsagnir um frumvarpið voru jákvæðar.
Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt.
Brynjar Níelsson og Vilhjálmur Bjarnason voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 26. apríl 2017.
| Óli Björn Kárason, form., frsm. |
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir. | Lilja Alfreðsdóttir. |
| Orri Páll Jóhannsson. | Ómar Ásbjörn Óskarsson. | Rósa Björk Brynjólfsdóttir. |
| Smári McCarthy. |