Ferill 482. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 674  —  482. mál.




Fyrirspurn


til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um United Silicon.

Frá Einari Brynjólfssyni.

     1.      Hversu háa ríkisaðstoð hefur United Silicon fengið á grundvelli 5. og 6. gr. fjárfestingarsamnings fyrirtækisins við ríkisstjórn Íslands frá 9. apríl 2014?
     2.      Hefur United Silicon skilað árlegum skýrslum til ráðuneytisins, eins og kveðið er á um í 19. gr. samningsins, og ef svo er, verða þær skýrslur birtar opinberlega?


Skriflegt svar óskast.