Ferill 488. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Prentað upp.

Þingskjal 680  —  488. mál.
Skriflegt svar.




Fyrirspurn


til forsætisráðherra um upplýsingagjöf til almennings og fjölmiðla.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hver leggur mat á það hvort þær upplýsingar sem ráðherra hefur undir höndunum varðandi skýrslu um eignir Íslendinga á aflandssvæðum varði almannahag eða ekki, sbr. 6. gr. siðareglna ráðherra um upplýsingagjöf og samskipti við almenning?
     2.      Hefur farið fram mat á því hvort efni skýrslu um eignir Íslendinga á aflandssvæðum varði almannahag? Ef svo er, hver var niðurstaða þess mats? Ef ekki, hvers vegna ekki?
     3.      Hvað telst vera reglulegur og skipulagður háttur við upplýsingagjöf til almennings og fjölmiðla?
     4.      Braut ráðherra siðareglur ráðherra með töfum á birtingu skýrslu um eignir Íslendinga á aflandssvæðum?


Skriflegt svar óskast.