Ferill 492. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Prentað upp.
Þingskjal 691 — 492. mál.
Skriflegt svar.
Fyrirspurn
til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um orkunýtingarstefnu.
Frá Ara Trausta Guðmundssyni.
1. Í hverju felst opinber skammtíma- og langtímastefna varðandi:
a. nýtingu jarðvarma,
b. rannsóknir á jarðvarmaauðlindum á háhita- og lághitasvæðum,
c. rannsóknir og þróun á vinnslutækni jarðhitanýtingar,
d. skipulag náms í þeim greinum tækniskóla og háskóla sem tengjast jarðhitaauðlindinni?
2. Hvernig er unnt að tryggja skýra stefnumótun í fjölnýtingu jarðhitaauðlinda, sbr. auðlindastefnu HS Orku?
3. Hvernig er unnt að viðhalda og efla sérstöðu Íslands í nýtingu jarðhita og tryggja samtímis útflutning íslenskrar jarðvarmaþekkingar?
4. Hvað líður gerð heildstæðrar og lögfestrar stefnu Íslands í orkumálum nú þegar rúm sex ár eru frá því að skýrsla um hana var lögð fyrir Alþingi í mars 2011?
Skriflegt svar óskast.