Ferill 237. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 706 — 237. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um hlutafélög, lögum um einkahlutafélög og lögum um sjálfseignarstofnanir sem stunda atvinnurekstur (einföldun, búsetuskilyrði).
(Eftir 2. umræðu, 4. maí.)
I. KAFLI
Breyting á lögum um hlutafélög, nr. 2/1995, með síðari breytingum.
1. gr.
a. 2.–5. málsl. 2. mgr. falla brott.
b. Á eftir orðinu „samlagsfélög“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: skráð félagasamtök, lífeyrissjóðir.
2. gr.
3. gr.
4. gr.
5. gr.
6. gr.
7. gr.
8. gr.
9. gr.
a. Við 1. mgr. bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Missi stjórnarmenn eða framkvæmdastjórar hæfi skulu þeir upplýsa hlutafélagaskrá um það. Hlutafélagaskrá hefur heimild til að afskrá stjórnarmenn eða framkvæmdastjóra sem missa hæfi sem slíkir.
b. Í stað 2. málsl. 2. mgr. koma þrír nýir málsliðir, svohljóðandi: Búsetuskilyrðið gildir þó ekki um ríkisborgara þeirra ríkja sem eru aðilar að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og þá sem eru búsettir á Evrópska efnahagssvæðinu. Búsetuskilyrðið gildir ekki heldur um ríkisborgara aðildarríkja stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða Færeyinga. Búsetuskilyrði gildir annars vegar um stjórn og hins vegar um varastjórn.
10. gr.
11. gr.
12. gr.
Skráning stjórnar og framkvæmdastjóra í hlutafélagaskrá skal standa óbreytt eftir að héraðsdómari hefur kveðið upp úrskurð um að bú hlutafélags verði tekið til skipta.
13. gr.
14. gr.
a. Í stað orðanna „tveggja vikna“ í 1. málsl. kemur: mánaðar.
b. Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Sé samruni ekki tilkynntur til hlutafélagaskrár innan mánaðar telst samruninn niður fallinn.
15. gr.
Tilkynna skal hlutafélagaskrá stofnun útibús erlends hlutafélags. Ákvæði XVII. kafla um skráningu hlutafélaga varðandi tilkynningar um stofnun félaganna skulu gilda eftir því sem við á. Í tilkynningu um stofnun útibús skal greina:
1. Nafn félagsins.
2. Lögheimili félagsins.
3. Skráningarstað félagsins.
4. Lagalegt form félagsins.
5. Skráningarnúmer félagsins.
6. Hlutafé félagsins.
7. Tilgang félagsins.
8. Stjórn félagsins.
9. Heiti útibúsins.
10. Heimilisfang útibúsins á Íslandi.
11. Tilgang útibúsins.
12. Nafn, kennitölu og heimilisfang útibússtjóra.
13. Prókúruumboð.
Með tilkynningu skulu fylgja eftirfarandi gögn:
1. Skráningarvottorð félagsins.
2. Síðasti ársreikningur félagsins.
3. Starfsumboð útibússtjóra frá stjórn félagsins.
II. KAFLI
Breyting á lögum um einkahlutafélög, nr. 138/1994, með síðari breytingum.
16. gr.
a. 2. mgr. fellur brott.
b. Á eftir orðinu „samlagsfélög“ í 1. málsl. 3. mgr. kemur: skráð félagasamtök, lífeyrissjóðir.
17. gr.
18. gr.
19. gr.
20. gr.
21. gr.
a. Við 1. mgr. bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Missi stjórnarmenn eða framkvæmdastjóri hæfi skulu þeir upplýsa hlutafélagaskrá um það. Hlutafélagaskrá hefur heimild til að afskrá stjórnarmenn eða framkvæmdastjóra sem missa hæfi sem slíkir.
b. Í stað 4. og 5. málsl. 2. mgr. koma þrír nýir málsliðir, svohljóðandi: Búsetuskilyrðið gildir þó ekki um ríkisborgara þeirra ríkja sem eru aðilar að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og þá sem eru búsettir á Evrópska efnahagssvæðinu. Búsetuskilyrðið gildir ekki heldur um ríkisborgara aðildarríkja stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða Færeyinga. Búsetuskilyrði gildir annars vegar um stjórn og hins vegar um varastjórn.
22. gr.
23. gr.
24. gr.
25. gr.
Skráning stjórnar og framkvæmdastjóra félags í hlutafélagaskrá skal standa óbreytt eftir að héraðsdómari hefur kveðið upp úrskurð um að bú hlutafélags verði tekið til skipta.
26. gr.
27. gr.
28. gr.
a. Í stað orðanna „tveggja vikna“ í 1. málsl. kemur: mánaðar.
b. Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Sé samruni ekki tilkynntur til hlutafélagaskrár innan mánaðar telst samruninn niður fallinn.
29. gr.
Tilkynna skal hlutafélagaskrá stofnun útibús erlends einkahlutafélags. Ákvæði XVII. kafla um skráningu einkahlutafélaga varðandi tilkynningar um stofnun félaganna skulu gilda eftir því sem við á. Í tilkynningu um stofnun útibús skal greina:
1. Nafn félagsins.
2. Lögheimili félagsins.
3. Skráningarstað félagsins.
4. Lagalegt form félagsins.
5. Skráningarnúmer félagsins.
6. Hlutafé félagsins.
7. Tilgang félagsins.
8. Stjórn félagsins.
9. Heiti útibúsins.
10. Heimilisfang útibúsins á Íslandi.
11. Tilgang útibúsins.
12. Nafn, kennitölu og heimilisfang útibússtjóra.
13. Prókúruumboð.
Með tilkynningu skulu fylgja eftirfarandi gögn:
1. Skráningarvottorð félagsins.
2. Síðasti ársreikningur félagsins.
3. Starfsumboð útibússtjóra frá stjórn félagsins.
III. KAFLI
Breyting á lögum um sjálfseignarstofnanir sem stunda atvinnurekstur, nr. 33/1999, með síðari breytingum.
30. gr.
a. Við 1. mgr. bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Missi stjórnarmenn eða framkvæmdastjórar hæfi skulu þeir upplýsa sjálfseignarstofnanaskrá um það. Sjálfseignarstofnanaskrá hefur heimild til að afskrá stjórnarmenn eða framkvæmdastjóra sem missa hæfi sem slíkir.
b. Í stað 2. málsl. 2. mgr. koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Búsetuskilyrðið gildir þó ekki um ríkisborgara þeirra ríkja sem eru aðilar að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og þá sem eru búsettir á Evrópska efnahagssvæðinu. Búsetuskilyrðið gildir ekki heldur um ríkisborgara aðildarríkja stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða Færeyinga.
31. gr.