Ferill 342. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 713 — 342. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Bjarna Jónssyni um skipun ráðgjafarnefnda heilbrigðisumdæma.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Mun ráðherra láta verða af því og þá hvenær að skipa ráðgjafarnefndir heilbrigðisumdæma eins og gefin voru fyrirheit um árið 2014 í tengslum við umfangsmikla sameiningu heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni það ár?
Ráðherra mun skipa ráðgjafarnefndir heilbrigðisumdæma, sbr. 5. gr. reglugerðar um heilbrigðisumdæmi nr. 1084/2014. Þar sem langt er um liðið frá því leitað var tilnefninga í ráðgjafarnefndirnar mun ráðherra leita nýrra tilnefninga innan tíðar og skipa nefndirnar í kjölfar þess.