Ferill 531. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 767 — 531. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um einkavæðingu Stýrimannaskólans.
Frá Svandísi Svavarsdóttur.
1. Hvað greiddi Menntafélagið ehf., eða eigendur þess, íslenska ríkinu fyrir Stýrimannaskólann?
2. Hvert var virði þeirra eigna, í íslenskum krónum að núvirði, sem runnu til Menntafélagsins ehf. og inn í Fjöltækniskólann frá íslenska ríkinu við einkavæðingu Stýrimannaskólans með flutningi hans til Menntafélagsins ehf.? Hverjar voru þessar eignir?
3. Fékk íslenska ríkið eignarhlut í Fjöltækniskólanum að lokinni einkavæðingu Stýrimannaskólans með flutningi hans til Menntafélagsins ehf.?
4. Rann Stýrimannaskólinn ásamt öllum eignum frá íslenska ríkinu inn í Fjöltækniskólann/Menntafélagið ehf. án nokkurs endurgjalds?
Skriflegt svar óskast.