Ferill 549. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 821 — 549. mál.
Fyrirspurn
til félags- og jafnréttismálaráðherra um sölu fasteigna Íbúðalánasjóðs.
Frá Daníel E. Arnarssyni.
2. Hvernig skiptust íbúðir sem seldar voru hvert ár eftir póstnúmerum?
3. Hvert var meðalverð á fermetra seldra fasteigna á ári í hverju póstnúmeri fyrir sig, flokkað eftir atvinnu- og íbúðarhúsnæði og uppfært á núgildandi verðlag?
4. Hve margar íbúðir seldi Íbúðalánasjóður hvert ár annars vegar til einstaklinga og hins vegar fyrirtækja?
5. Hvert var meðalverð á fermetra þeirra eigna sem seldar voru annars vegar einstaklingum og hins vegar fyrirtækjum ár hvert, skipt eftir póstnúmerum?
6. Telur ráðherra þörf á að endurskilgreina hlutverk og starfsemi Íbúðalánasjóðs og hverju ætti helst að breyta ef breytinga er þörf?
Skriflegt svar óskast.