Ferill 411. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 841 — 411. mál.
2. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til laga um breytingu á lögum um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða, nr. 75/2011 (hlutverk, framlag ríkissjóðs o.fl.).
Frá Gunnari Ingiberg Guðmundssyni.
Við 4. gr. bætist nýr liður, svohljóðandi: Við 4. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Sá sem fær úthlutað úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða skal greiða mótframlag sem nánar er ákveðið í reglugerð. Ráðherra skal þó vera heimilt að víkja frá kröfu um mótframlag sé úthlutun veitt til ferðamannastaða í einkaeigu þar sem engin þjónusta er veitt. Sé vikið frá kröfu um mótframlag má fjárhæð styrks nema að hámarki 8.000.000 kr.