Ferill 326. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 881  —  326. mál.




Svar


mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn frá Ástu Guðrúnu Helgadóttur um aðild Lánasjóðs íslenskra námsmanna að dómsmálum.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
         Að hversu mörgum dómsmálum hefur Lánasjóður íslenskra námsmanna átt aðild frá árinu 2000? Svar óskast sundurliðað eftir árum, því hvort sjóðurinn var stefnandi eða hinn stefndi, niðurstöðu úrskurðar, þ.e. hvort sjóðurinn vann mál eða tapaði, og því hversu oft dómsátt náðist.

    Ráðuneytið sendi fyrirspurnina til Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Frá lánasjóðnum fengust þau svör að ekki væri haldin sérstök skrá um mál sem lánasjóðurinn hefði flutt fyrir dómstólum. Hins vegar aflaði lánasjóðurinn eftirfarandi upplýsinga sem voru veittar ráðuneytinu. Athuga ber að flest dómsmálin sem um er að ræða eru innheimtumál.
     *      Fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur voru þingfest 3.071 mál frá lánasjóðnum á tímabilinu frá 1. janúar 2000 – apríl 2017.
     *      Alls lauk 2.612 málum með dómi þar sem útivist var af hálfu stefnda, þ.e. fallist á dómkröfur lánasjóðsins.
     *      Dómsmál sem lauk með réttarsátt, þar sem stefndi viðurkenndi dómkröfur lánasjóðsins, voru 268.
     *      Í 118 málum var uppi ágreiningur milli lánasjóðsins og stefndu og gengu þau mál til dóms en ekki er haldin sérstök skrá um afdrif þeirra mála.
     *      Fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur bíða nú u.þ.b. 79 mál meðferðar.