Ferill 497. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 929 — 497. mál.
Svar
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Svandísi Svavarsdóttur um bifreiðakaup atvinnuvegaráðuneytisins.
1. Hversu margar bifreiðar hafa verið keyptar til afnota fyrir atvinnuvegaráðuneytið frá því í ársbyrjun 2014, af hvaða tegund eru þær, hvaða eldsneyti notar hver þeirra, hver er uppgefin eldsneytisnotkun hverrar þeirrar og hver er uppgefin losun hverrar þeirra á koltvíoxíði (CO2)?
Tvær bifreiðar hafa verið keyptar til afnota fyrir ráðuneytið frá árinu 2014.
Í maí 2015 var keypt bifreið af gerðinni Toyota Land Cruiser 150 VX, dísel, uppgefin eyðsla er 7 l á hverja 100 km og útblástur CO2 213 gr/km.
Önnur bifreið var keypt í desember 2016 af gerðinni Volvo XC90 Momentum T8, tengitvinn sem gengur fyrir rafmagni og bensíni. Uppgefin eyðsla er 2,1 l á 100 km og losun á koltvíoxíði 50 gr/km.
2. Hvernig samræmast bifreiðakaup fyrir ráðuneytið markmiði í tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um orkuskipti (146. mál) um að fimmtungur bifreiða í eigu opinberra aðila verði vistvænn fyrir árið 2020?
Í útboðsskilmálum vegna kaupa á ráðherrabifreið í byrjun árs 2015 var ekki sett skilyrði um tengitvinn (hybrid) eða tvinnvél (plug-in hybrid), eingöngu var gerð krafa um útblástur.
Í útboðslýsingu kom fram að losun skyldi ekki vera umfram 220 CO2 í blönduðum akstri og eyðsla ekki umfram 9 l/100 km.
Í útboðskilmálum vegna kaupa á ráðherrabifreið 2016 var gerð krafa um að losun færi ekki yfir 80 CO2 og eyðsla væri ekki umfram 5 l/100 km. Þá var gerð krafa um að bifreiðin væri með tvinnvél (hybrid) eða tengitvinnvél (plug-in hybrid). Á þeim tæpu tveimur árum sem leið á milli útboða höfðu orðið miklar tækniframfarir og því hægt að gera aðrar og meiri kröfur haustið 2016.
3. Hefur krafa um að bifreiðar sem keyptar eru til nota fyrir opinbera aðila nýti endurnýjanlega orkugjafa verið í útboðsskilmálum vegna bifreiðakaupa ráðuneytisins eða er áformað að slíkir skilmálar verði settir?
Við kaup á bifreið á árinu 2016 var gerð krafa um að bifreiðin væri með tvinnvél (hybrid) eða tengitvinnvél (plug-in hybrid) og má gera ráð fyrir að svo verði í framtíðinni þegar kaup á nýjum bifreiðum verða boðin út.