Ferill 531. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 958 — 531. mál.
Svar
mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn frá Svandísi Svavarsdóttur um einkavæðingu Stýrimannaskólans.
1. Hvað greiddi Menntafélagið ehf., eða eigendur þess, íslenska ríkinu fyrir Stýrimannaskólann?
Engar greiðslur áttu sér stað frá Menntafélaginu/Fjöltækniskólanum fyrir Stýrimannaskólann í Reykjavík, enda er ríkið eigandi og verður eigandi allra þeirra eigna sem Menntafélagið/Fjöltækniskóli Íslands tók til rekstrar ásamt þeim tækjum og tólum sem bætast við á rekstrartíma Menntafélagsins/Fjöltækniskóla Íslands. Verði þjónustusamningnum sagt upp eða ljúki samningstímanum með öðrum hætti tekur ríkið við skólanum með öllum eignum sem voru fyrir hendi, hafa verið endurnýjaðar eða aflað af Menntafélaginu/Fjöltækniskóla Íslands.
2. Hvert var virði þeirra eigna, í íslenskum krónum að núvirði, sem runnu til Menntafélagsins ehf. og inn í Fjöltækniskólann frá íslenska ríkinu við einkavæðingu Stýrimannaskólans með flutningi hans til Menntafélagsins ehf.? Hverjar voru þessar eignir?
Engar eignir runnu inn í Menntafélagið/Fjöltækniskóla Íslands við gerð þjónustusamningsins um rekstur Stýrimannaskólans í Reykjavík. Ríkissjóður er eigandi eignanna og Menntafélagið/Fjöltækniskóli Íslands rekstraraðili. Menntafélagið/Fjöltækniskóli Íslands greiðir húsaleigu fyrir húsnæði skólanna sem er í eigu ríkisins með sama hætti og aðrir framhaldsskólar.
3. Fékk íslenska ríkið eignarhlut í Fjöltækniskólanum að lokinni einkavæðingu Stýrimannaskólans með flutningi hans til Menntafélagsins ehf.?
Nei, enda var Stýrimannaskólinn í Reykjavík lagður niður.
4. Rann Stýrimannaskólinn ásamt öllum eignum frá íslenska ríkinu inn í Fjöltækniskólann/ Menntafélagið ehf. án nokkurs endurgjalds?
Nei. Engar eigur ríkisins hafa runnið inn í Menntafélagið/Fjöltækniskóla Íslands.