Ferill 601. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 969 — 601. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um biðtíma eftir mjaðma- og hnjáliðaskiptum.
Frá Guðrúnu Ágústu Þórdísardóttur.
1. Hversu langur biðlisti er nú eftir mjaðma- og hnjáliðaskiptaaðgerðum á opinberum sjúkrastofnunum, sundurliðað eftir sjúkrastofnunum og tegundum aðgerða?
2. Á hvaða deild eða deildir leggjast þeir sem hafa farið í mjaðma- eða hnjáliðaskiptaaðgerð annars staðar en á opinberum sjúkrastofnunum og þurfa frekari heilbrigðisþjónustu af hálfu opinberra sjúkrastofnana og hvernig verður fyrirkomulagi móttöku þessara sjúklinga háttað ef fjöldi þeirra eykst?
3. Hversu mörg legu- og endurhæfingarpláss eru til fyrir þá sem hafa undirgengist mjaðma- og hnjáliðaskiptaaðgerðir og hvernig var nýting þessara plássa árin 2015 og 2016?
4. Hefur móttaka sjúklinga sem hafa farið í mjaðma- eða hnjáliðaskiptaaðgerð utan opinberra sjúkrastofnana áhrif á biðtíma eftir mjaðma- og hnjáliðaskiptum á opinberum sjúkrastofnunum og telur ráðherra að þau áhrif geti aukist ef aðgerðum utan opinberra sjúkrastofnana fjölgar?
5. Telur ráðherra að vandi sé á höndum varðandi biðlista eftir mjaðma- og hnjáliðaskiptaaðgerðum á opinberum sjúkrastofnunum og ef svo er, hverja telur hann orsök vandans og hvernig hyggst hann bregðast við honum?
Skriflegt svar óskast.