Ferill 604. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 972 — 604. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis- og auðlindaráðherra um fráveitumál í Mývatnssveit og á friðlýstum svæðum.
Frá Óla Halldórssyni.
1. Mun ríkissjóður leggja fram fjármuni, og þá hve mikla, til nauðsynlegra framkvæmda við fráveitu í Mývatnssveit?
2. Hver er afstaða ráðherra til ábyrgðar ríkisins í fráveitumálum í Mývatnssveit í ljósi friðlýsingar svæðisins og gildi þess sem RAMSAR-verndarsvæðis?
3. Hver er stefna ráðherra varðandi ábyrgð og aðkomu ríkisins að fráveitumálum á friðlýstum svæðum og svæðum sem ríkið hefur tilnefnt til alþjóðlegrar verndunar?
Skriflegt svar óskast.