Ferill 476. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 987  —  476. mál.




Svar


sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur um ábúð á jörðum í eigu ríkisins.


     1.      Hve margar jarðir í eigu ríkisins hafa losnað árlega úr ábúð sl. 10 ár, hve margar þeirra hafa verið auglýstar lausar til ábúðar, hve margar eru ekki lengur í ábúð og hver er ástæða þess?
     2.      Hver er stefna ríkisstjórnarinnar um ábúð ríkisjarða og sölu bújarða í eigu ríkisins?
     3.      Hver er eigendastefna ríkisins gagnvart bújörðum?
     4.      Á hve stórum hluta ríkisjarða hefur farið fram mat á því hvort það felist samfélagslegur ávinningur í eignarhaldi ríkisins eða almannahagsmunir, svo sem vegna landgræðslu, vegagerðar eða annars sem ríkið metur til almannahagsmuna?
     5.      Hvaða skilyrði þarf ábúð á ríkisjörð að uppfylla til að talið verði að samfélagslegir hagsmunir byggðar á viðkomandi svæði skaðist ekki verði látið af ábúð? Hversu þungt vega þessi sjónarmið við mat á nauðsyn ábúðar á ríkisjörðum?

    Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra getur ekki svarað þessum liðum fyrirspurnarinnar þar sem mál sem varða ríkisjarðir heyra undir fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. 57. gr. laga nr. 55/1991 um þingsköp Alþingis (þingskapalög).

     6.      Hvernig hyggst ráðherra framfylgja og útfæra bókun um byggðamál sem fram kemur í rammasamningi um starfsskilyrði landbúnaðarins, gagnvart bújörðum í eigu ríkisins, þess efnis að ráðast skuli í starf sem miðar að því að treysta innviði og búsetu í sveitum?
    Rammasamningur um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins var undirritaður 19. febrúar 2016. Í samningnum er að finna bókun um byggðamál og í júní 2016 var skipaður starfshópur um að treysta innviði og búsetu í sveitum til þess að fylgja þeirri bókun eftir. Starfshópurinn skilaði af sér skýrslu í október 2016 þar sem hann lagði fram tillögur um markvissa uppbyggingu innviða, svo sem áframhaldandi stuðning við „brothættar byggðir“, stórfellt átak í samgöngumálum og fjarskiptum og afhendingaröryggi raforku og tryggu öryggi að þrífasa rafmagni. Nefndin gerði auk þess tillögur að breytingum sem miða að aukinni skilvirkni með nýtingu fyrirliggjandi innviða og úrræða, t.d. með breytingum á fyrirliggjandi kerfum og lagaumhverfi. Í skýrslunni er ekki gerður greinarmunur á bújörðum í eigu ríkisins og öðrum bújörðum.
    Með bréfi dags. 9. mars 2016 fól þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Byggðastofnun að hefja vinnu við mótun stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir tímabilið 2017–2023. Áætlunin verður unnin samkvæmt lögum nr. 69/2015, um byggðaáætlun og sóknaráætlanir. Meginmarkmið byggðaáætlunar skal samkvæmt lögunum vera að jafna tækifæri allra landsmanna til atvinnu og þjónustu, jafna lífskjör þeirra og stuðla að sjálfbærri þróun byggðarlaga um allt land. Skýrsla starfshópsins verður lögð til grundvallar við gerð byggðaáætlunarinnar.

     7.      Tryggir ríkissjóður fjallskil á þeim jörðum sínum þar sem þau eiga við?
    Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra getur ekki svarað þessum lið fyrirspurnarinnar þar sem mál sem varða ríkisjarðir heyra undir fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. 57. gr. þingskapalaga.

     8.      Hver er stefna ríkisstjórnarinnar um flokkun og vernd ræktunarlands, hver er staðan á skráningu ræktarlands og liggja fyrir verndar- og varðveisluráðstafanir þar sem þær eru taldar eiga við?
    Stjórnvöld gera sér grein fyrir verðmæti lands og mikilvægi þess að góð ræktunarlönd séu nýtt í þágu landbúnaðarframleiðslu. Í ljósi þess er það stefna stjórnvalda að takmarka heimildir til breytinga á landnotum sem fela í sér að gott ræktað land sé tekið úr landbúnaðarnotum.
    Bændasamtök Íslands (BÍ) halda utan um skráningu ræktarlands með skráningarkerfinu „jörð“ (jord.is), en þangað færast einnig upplýsingar um hnituð tún. Þar skila bændur skýrsluhaldi um ræktun, uppskeru o.fl. Skráning í jarðræktarskýrsluhald BÍ er grundvöllur úthlutunar styrkja, sem Matvælastofnun sér um að greiða út. Samningur liggur fyrir milli Matvælastofnunar og BÍ um aðgengi Matvælastofnunar að „jörð“ og bændatorgi.
    Umsóknir um styrki fara í gegnum bændatorg, sem sækir upplýsingar um það ræktarland sem við á, í „jörð“. Þegar umsókn hefur verið yfirfarin og framkvæmdir teknar út eru upplýsingar staðfestar og sendast yfir í greiðslukerfi landbúnaðarins, Afurð, sem Matvælastofnun notar við úthlutun styrkja.
    Matvælastofnun hefur því eftirlit með upplýsingakerfum um ræktunarlönd. Ekki liggja fyrir að öðru leyti verndar- og varðveisluráðstafanir vegna ræktarlands

     9.      Telur ráðherra að setja þurfi skýrar reglur sem miða að því að koma í veg fyrir kaup erlendra aðila, sem ekki hafa hér lögheimili og fasta búsetu, á landi, m.a. jörðum í eigu ríkisins? Ef svo er, hvert verður megininntak þeirra reglna?
    Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra getur ekki svarað þessum lið fyrirspurnarinnar þar sem mál sem varða kaup erlendra aðila á jörðum heyra undir dómsmálaráðherra, sbr. 57. gr. þingskapalaga.

     10.      Hvernig mun ráðherra, í tilvikum bújarða ríkisins, tryggja markmið rammasamnings um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins um að „auðvelda nýliðun, þannig að nauðsynleg kynslóðaskipti geti orðið í hópi framleiðenda og tryggja að stuðningur ríkisins nýtist sem best starfandi bændum“?
    Stjórnvöld leggja áherslu á stuðning við nýliðun og kynslóðaskipti í hópi framleiðenda í formi fjárhagslegrar aðstoðar til þess að auðvelda nýliðum fjárhagslega byrði í upphafi búskapar. Um rammasamning um starfsskilyrði landbúnaðarins gildir reglugerð nr. 1240/2016 um almennan stuðning við landbúnað. Í reglugerðinni er fjallað um nýliðunarstuðning sem ætlað er að aðstoða nýliða við að hefja búskap og auðvelda ættliðaskipti í landbúnaði. Nýliðunarstuðningnum er þannig ætlað að tryggja að markmið rammasamningsins nái fram að ganga. Matvælastofnun sér um að ráðstafa fjármunum til nýliðunarstuðnings.
    Í reglugerðin er boðið upp á frekari fjárstuðning til starfandi bænda, en til viðbótar við nýliðunarstyrk eru t.d. jarðræktarstyrkur og stuðningur við lífræna framleiðslu. Allir starfandi bændur geta sótt um slíkan stuðning að uppfylltum þeim skilyrðum sem fram koma í 3. gr. reglugerðarinnar.
    Við mat umsókna um fjárstuðning er ekki litið til þess hvert sé eignarhald jarðarinnar sem um ræðir, heldur er eingöngu litið til þess hvort skilyrðin sem sett eru séu uppfyllt eða ekki. Samkvæmt framangreindu gildir reglugerðin því jafnt um ábúendur ríkisjarða og aðra ábúendur.

     11.      Hvernig hyggst ráðherra tryggja megináherslur samningsins um viðhald ræktunar og endurræktun grass, grænfóðurs og korns á bújörðum ríkisins svo að ræktað land sem ekki er setið fari ekki fljótlega í órækt?
    Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra getur ekki svarað þessum lið fyrirspurnarinnar þar sem mál sem varða ríkisjarðir heyra undir fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. 57. gr. þingskapalaga.