Ferill 411. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 1027 — 411. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða, nr. 75/2011 (hlutverk, framlag ríkissjóðs o.fl.).
(Eftir 2. umræðu, 31. maí.)
1. gr.
a. 1. málsl. 1. mgr. orðast svo: Framkvæmdasjóður ferðamannastaða skal stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða sem eru í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila um land allt.
b. 1. tölul. 2. mgr. orðast svo: Uppbyggingar, viðhalds og verndunar mannvirkja og náttúru á ferðamannastöðum sem eru í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.
c. Í stað orðanna „opinberra aðila“ í 2. tölul. 2. mgr. kemur: eða umsjón sveitarfélaga.
d. Við bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Framkvæmdir sem eru á landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum koma ekki til álita við úthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða nema sérstaklega standi á, verkefnið sé í þágu almannahagsmuna og þarfnist skjótrar úrlausnar.
Ferðamannastaðir sem úthlutað er til úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða skulu vera opnir gjaldfrjálsri umferð almennings eftir því sem nánar er kveðið á um í lögum og reglugerðum. Landeiganda eða umsjónaraðila lands er þó heimilt að taka gjald fyrir veitta þjónustu.
2. gr.
Ráðherra skipar fjóra fulltrúa í stjórn Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða til tveggja ára í senn. Skal einn skipaður eftir tilnefningu Samtaka ferðaþjónustunnar, einn eftir tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga, einn eftir tilnefningu ráðherra sem fer með málefni náttúruverndar og einn án tilnefningar og skal hann vera formaður.
3. gr.
a. 1. tölul. orðast svo: Framlag ríkissjóðs sem ákveðið er í fjárlögum.
b. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Rekstrarkostnaður Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða skal greiddur af fjárheimildum sjóðsins.
c. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Tekjur og gjöld.
4. gr.
5. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.
Stjórn Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða er heimilt að taka til greina umsóknir opinberra aðila sem mótteknar hafa verið fyrir gildistöku laga þessara en hafa ekki enn hlotið afgreiðslu.