Ferill 11. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


147. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 11  —  11. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um úttekt á starfsemi fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins og leiðir til að tryggja stöðu þeirra.


Flm.: Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Svandís Svavarsdóttir, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Ari Trausti Guðmundsson, Birgitta Jónsdóttir, Smári McCarthy, Einar Brynjólfsson, Elsa Lára Arnardóttir, Eygló Harðardóttir, Oddný G. Harðardóttir, Guðjón S. Brjánsson, Logi Einarsson, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Njáll Trausti Friðbertsson.


    Alþingi ályktar að fela mennta- og menningarmálaráðherra að skipa starfshóp sem geri úttekt á starfsemi og stöðu fjölmiðla sem starfræktir eru utan höfuðborgarsvæðisins og leggi fram tillögur sem feli í sér aðferðir og leiðir til að efla og tryggja stöðu landsbyggðarfjölmiðla þannig að þeir fái gegnt lýðræðis-, menningar-, upplýsinga- og fræðsluhlutverki sínu.
    Mennta- og menningarmálaráðherra sjái starfshópnum fyrir starfsaðstöðu og greiði kostnað við störf hans. Starfshópurinn leggi skýrslu sína og tillögur fram eigi síðar en 1. nóvember 2018.

Greinargerð.

    Tillaga þessi var áður flutt á 146. löggjafarþingi (77. mál).
    Að margra áliti búa fjölmiðlar sem starfræktir eru utan höfuðborgarsvæðisins við erfið starfsskilyrði sem hamla því á ýmsan hátt að þeir geti rækt hlutverk sitt eins og æskilegt væri. Flutningsmenn þessarar þingsályktunartillögu líta svo á að þar sem frjáls og fjölbreytt fjölmiðlun er meðal þess sem lýðræðissamfélög geta síst án verið sé áríðandi að afla haldbærra upplýsinga um stöðu landsbyggðarfjölmiðla og styrkja rekstrargrundvöll þeirra þar sem þess er þörf og forsendur eru fyrir slíkum stuðningi.
    Þingmál af sama toga hafa áður verið lögð fyrir Alþingi og bera þess vott að staða fjölmiðla sem eru starfræktir utan höfuðborgarsvæðisins hefur verið ýmsum úr hópi þingmanna hugleikin um nokkurt skeið en þar sem ekki hefur tekist hingað til að ná samstöðu um að ljúka þessum málum með ráðstöfunum í þágu fjölmiðlunar á landsbyggðinni skal enn á ný gerð atrenna að því að láta kanna stöðu þessara mála og færa þau til betra horfs.
    Á 131. löggjafarþingi lagði Dagný Jónsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, fram tillögu til þingsályktunar um staðbundna fjölmiðla (234. mál) ásamt þingmönnum úr röðum allra annarra þingflokka. Flutningsmaður mælti fyrir málinu og gekk það að svo búnu til menntamálanefndar sem sendi út umsagnarbeiðnir vegna þess snemma í apríl 2005. Sex umsagnir bárust sem lýstu mjög ólíkum skoðunum á málinu. Þingsályktunartillaga Dagnýjar Jónsdóttur og meðflutningsmanna hennar varð ekki útrædd á 131. löggjafarþingi og var endurflutt á 132. og 133. þingi án þess að koma til lokaafgreiðslu. Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksins, flutti tillögu til þingsályktunar um staðbundna fjölmiðla á 139. löggjafarþingi (107. mál) ásamt samflokksmönnum sínum og þingmönnum úr Samfylkingunni og Vinstri hreyfingunni – grænu framboði. Að þessu sinni bárust átta umsagnir um málið sem allar voru jákvæðar í garð þess en það hlaut þó ekki afgreiðslu menntamálanefndar.
    Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, lagði fram tillögu til þingsályktunar um svæðisbundna fjölmiðla á 144. löggjafarþingi (239. mál) ásamt fleiri þingmönnum og var tillagan efnislega áþekk þeirri sem Dagný Jónsdóttir flutti upphaflega. Tillagan kom ekki til meðferðar á 144. þingi og var ekki lögð fram á 145. þingi. Fyrirliggjandi þingsályktunartillaga er af sama toga og þær sem vikið er að hér að framan.
    Að auki bera að geta fyrirspurnar Heiðu Kristínar Helgadóttur, þingmanns Bjartrar framtíðar, til mennta- og menningarmálaráðherra á 145. löggjafarþingi (341. mál) um fjölmiðlastyrki og svars ráðherra þar sem einmitt kemur fram að „ítarlegar rannsóknir og greiningar á rekstrarumhverfi fjölmiðla hér á landi“ séu nauðsynlegur undanfari og grundvöllur styrkveitinga til fjölmiðla í því skyni að stuðla að fjölbreytileika þeirra og vinna gegn samþjöppun eignarhalds á fjölmiðlamarkaði.
    Árið 2005, þegar Dagný Jónsdóttir lagði fram þingsályktunartillögu sína um staðbundna fjölmiðla, kom fyrir sjónir almennings viðamikil Skýrsla nefndar menntamálaráðherra um íslenska fjölmiðla sem var afrakstur nefndarstarfs sem efnt var til í kjölfar þess að forseti Íslands synjaði lögum nr. 48/2000, um breytingu á útvarpslögum, nr. 53/2000, og samkeppnislögum, nr. 8/1993, staðfestingar. Aðalefni skýrslunnar felst í umfjöllun um starfsumhverfi fjölmiðla almennt og þýðingu þeirra fyrir lýðræði, frjáls skoðanaskipti, upplýsingagjöf og menningarlega- og stjórnmálalega fjölbreytni, en þar var einnig vikið að þýðingu svæðisbundinna miðla á borð við bæjar- og héraðsfréttablöð og skyldum hins opinbera gagnvart slíkri starfsemi.
    Fáum blandast hugur um mikilvægi frjálsrar fjölmiðlunar enda er þekking almennings á umheiminum og skilningur á honum að miklu leyti kominn undir fréttum miðlanna og annarri umfjöllun þeirra. Staðbundnir fjölmiðlar og fjölmiðlar á landsvísu sem starfræktir eru utan höfuðborgarsvæðisins gegna hlutverki við að tryggja nauðsynlega fjölbreytni lýðræðislegrar umræðu og skoðanaskipta þar sem margvísleg sjónarmið njóta sín og verða grundvöllur afstöðu og ákvarðanatöku.
    Eigin dagskrárgerð og sjálfstæð ritstjórn og blaðamennska þykja jafnan grundvallarforsendur fyrir stuðningi við starfsemi fjölmiðla og einnig að um sé að tefla miðil sem birtir fjölbreytt ritstjórnarefni en er ekki einungis auglýsingamiðill. Opinber stuðningur við starfsemi fjölmiðla getur farið fram með ýmsum hætti en mikilvægt er að tilhögun stuðningsins sé þannig að hann hafi ekki áhrif á ritstjórnarstefnu viðkomandi miðla. Stuðningur getur falist í dreifingarstyrk og var þeirri leið nokkuð beitt sums staðar erlendis meðan prentmiðlar voru allsráðandi en miklu síður eftir að ljósvakamiðlar tóku forystuna hvað útbreiðslu snertir. Í mörgum tilfellum þykir nú vænlegra að ná markmiðum með styrkveitingu til fjölmiðla með því að styðja við framleiðslu á efni sem viðkomandi fjölmiðill framleiðir og ritstýrir sjálfur enda er það talið til þess fallið að styrkja rekstrarhæfi miðilsins til lengri tíma, stuðla að fjölbreytni, sjálfstæðum vinnubrögðum og óhæði ritstjórnar.
    Meðal þess sem hefur einkennt þróunina í rekstri fjölmiðla undanfarin ár og áratugi er að eignarhald á fjölmiðlum og efnisveitum hefur færst á færri hendur en áður var (e. media convergence). Til hafa orðið risastórar fjölmiðlasamsteypur sem starfa á alþjóðlegum markaði. Deilt er um þessa þróun og áhrif hennar á miðlun upplýsinga og menningarstarfsemi þar sem mörgum þykir gæta einsleitni og telja að það áhrifavald sem í fjölmiðlum býr sé ekki nægilega dreift. Við þessar aðstæður verður þýðing staðbundinna miðla, sem eru hluti nærsamfélagsins, sinna því og birta umheiminum viðhorf þess, enn meiri en ella.
    Opinberar styrkveitingar til fjölmiðla tíðkast á Norðurlöndum og er jafnan lögð áhersla á að slíkur stuðningur stuðli að fjölbreytni miðlanna og sjálfstæði þeirra. Í Noregi annast Medietilsynet veitingu styrkja til fjölmiðla. Stjórnskipuð nefnd, Mediemangfoldsutvalget, sem komið var á fót til að gera tillögur um stefnu ríkisins með tilliti til fjölbreytni í fjölmiðlun, skilaði áliti í mars 2017 í skýrslunni Det norske mediemangfoldet. En styrket mediepolitikk for borgerne. Þar er gerð grein fyrir þeim miklu breytingum sem orðið hafa á starfsumhverfi og rekstrargrundvelli fjölmiðla á undanförnum árum, bent á ýmsar ráðstafanir sem unnt er að gera til að styrkja stöðu þeirra og vikið að því að nauðsynlegt sé að endurskoða opinbera fjölmiðlastefnu og breyta henni til samræmis við veruleika samtímans. Við birtingu skýrslunnar hófst umsagnarferli um hana.
    Í Danmörku sér Medienævnet um úthlutun fjölmiðlastyrkja en í Svíþjóð er það Presstödsnämnden sem gegnir þessu hlutverki.
    Í ljósi þeirra miklu breytinga sem hafa átt sér stað á fjölmiðlun og rekstri fjölmiðla á undanförnum árum og áratugum er að vonum að oft og mikið hafi verið fjallað um þennan mikilvæga þátt lýðræðisins á Norðurlöndum. Hér verða aðeins nefndar fáeinar norrænar skýrslur og greinargerðir um breytingar á starfsumhverfi fjölmiðla og gildi opinbers stuðnings við greinina sem hafa mætti til hliðsjónar í því starfi sem unnið verður ef þessi þingsályktunartillaga hlýtur samþykki. Í Noregi kom út árið 2000 skýrslan Pressepolitikk ved et tusenårsskifte. Dagspresseutvalgets instilling og árið 2010 birtist skýrslan Lett å komme til orde, vanskelig å bli hørt – en moderne mediestøtte. Utredning fra et utvalg oppnevnt av Kulturdepartementet den 19. oktober 2009. Avgitt 16. desember 2010 og snýst hún að meginefni til beinlínis um opinberan stuðning við fjölmiðla eins og heiti hennar gefur raunar til kynna. Árið 2011 birtist í Danmörku ritið Demokratistøtte. Fremtidens offentlige mediestøtte sem var afrakstur starfs nefndar – Mediestøtteudvalget – sem menningarmálaráðherra Dana skipaði í samræmi við víðtækt samkomulag stjórnmálaflokka á danska þinginu árið 2006 og í Svíþjóð birtist í febrúar 2016 viðamikil greinargerð um stöðu fjölmiðla á markaði, Människorna, medierna & marknaden. Medieutredningens forskningsantologi om en demokrati i förändring, þar sem meðal annars er gerð rækileg grein fyrir hlutverki opinbers stuðnings við sænska fjölmiðla.
    Þessu til viðbótar skal nefnt að tjáningarfrelsi og fjölbreytt miðlun njóta viðurkenningar og verndar í mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. 10. gr., og sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. 11. gr. Af þessum sökum hafa ýmsar stofnanir Evrópusambandsins samþykkt tilmæli til aðildarríkjanna um frjálsa fjölmiðla, starfsemi þeirra og starfsumhverfi. Einnig hefur Evrópusambandið staðið fyrir ýmiss konar verkefnum sem miða að því að tryggja stöðu og starfsemi frjálsra fjölmiðla og stuðla að fjölbreytni þeirra.