Ferill 13. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
147. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 13 — 13. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006, og lögum um hlutafélög, nr. 2/1995, með síðari breytingum (aukinn aðgangur að ársreikningaskrá og hlutafélagaskrá).
Flm.: Björn Leví Gunnarsson, Eva Pandora Baldursdóttir, Smári McCarthy.
1. gr.
Við 2. mgr. 127. gr. laga um ársreikninga, nr. 3/2006, bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Engin gjaldtaka skal þó vera fyrir rafræna uppflettingu í skránni og skulu allar upplýsingar birtast í rafrænni uppflettingu.
2. gr.
Við 2. mgr. 147. gr. laga um hlutafélög, nr. 2/1995, bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Engin gjaldtaka skal þó vera fyrir rafræna uppflettingu í skránni og skulu allar upplýsingar birtast í rafrænni uppflettingu.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Greinargerð.
Frumvarp til laga sambærilegt þessu er varðaði aukinn aðgang að fyrirtækjaskrá var samþykkt á Alþingi á 146. löggjafarþingi og varð að lögum nr. 64/2017. Fólu lögin í sér að veita almenningi aðgang að fyrirtækjaskrá án gjaldtöku. Hér er lagt til að gögn sem tengist þeim sem er að finna í fyrirtækjaskrá verði gerð aðgengileg á sama hátt.