Ferill 20. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


147. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 20  —  20. mál.




Beiðni um skýrslu


frá fjármála- og efnahagsráðherra um ábendingar í rannsóknarskýrslum Alþingis.


Frá Birni Leví Gunnarssyni, Svandísi Svavarsdóttur, Einari Brynjólfssyni, Andrési Inga Jónssyni, Birgittu Jónsdóttur, Hönnu Katrínu Friðriksson, Jóni Steindóri Valdimarssyni, Nichole Leigh Mosty, Oddnýju G. Harðardóttur, Silju Dögg Gunnarsdóttur og Smára McCarthy.


    Með vísan til 54. gr. stjórnarskrárinnar og 54. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að fjármála- og efnahagsráðherra flytji Alþingi skýrslu um ábendingar sem fram koma í rannsóknarskýrslum Alþingis.

Greinargerð.

    Í skýrslunni verði samantekt á þeim ábendingum sem settar eru fram í þremur rannsóknarskýrslum Alþingis, þ.e. skýrslu um aðdraganda og orsakir á falli íslensku bankanna 2008, skýrslu um aðdraganda og orsakir erfiðleika og falls sparisjóðanna og skýrslu um Íbúðalánasjóð.
    Í skýrslunni komi fram upplýsingar um hvað ætla megi að margar ábendingar hafi verið í hverri skýrslu fyrir sig, við hve mörgum ábendingum hafi verið brugðist í hverri skýrslu fyrir sig, við hvaða ábendingum hefur verið brugðist og hvernig, með hve mörgum ábendingum hafi verið skipaðir ábyrgðaraðilar til að tryggja að þeim verði komið á framfæri og hvernig ráðherra hyggist tryggja að ábendingum hafi verið og verði fylgt eftir.
    Í þeim tilvikum þar sem ekki hefur verið skipaður ábyrgðaraðili komi fram í skýrslunni hvernig ráðherra hyggist tryggja að ábendingar nái fram að ganga og hvernig hafi verið háttað eftirfylgni með því að þau viðbrögð skiluðu árangri.
    Óskað er eftir tæmandi lista yfir þær ábendingar í hverri skýrslu sem ráðherra hyggst ekki bregðast við ásamt skýringum á hvers vegna það verði ekki gert.
    Þá komi fram í skýrslunni mat ráðherra á þeim árangri sem eftirfylgni hefur haft, hvernig ráðherra mælir og metur þann árangur og hvaða breytingar hafi orðið á starfsemi bankanna og Íbúðalánasjóðs sem rekja megi til ábendinga sem fram koma í skýrslunum.