Ferill 88. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


147. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 153  —  88. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Silju Dögg Gunnarsdóttur um ferðakostnað ráðherra.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hver er heildarkostnaður ráðuneytisins vegna ferða ráðherra frá því að núverandi ríkisstjórn tók við völdum í janúar 2017, sundurliðað eftir innan- og utanlandsferðum?

    Heildarkostnaður vegna ferða ráðherra frá því að núverandi ríkisstjórn tók við völdum í janúar 2017 til septemberloka, sundurliðað eftir innan- og utanlandsferðum er eftirfarandi:
    Kostnaður vegna ferða utan lands 1.286.249 kr.
    Kostnaður vegna ferða innan lands 634.262 kr.
    Samtals á tímabilinu 1.920.511 kr.
    Utanlandsferðir voru fjórar, til Oslóar, Parísar, Amsterdam og Washington. Ferðakostnaður annarra en ráðherra er ótalinn.