Ferill 89. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
147. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 160 — 89. mál.
Svar
forsætisráðherra við fyrirspurn frá Silju Dögg Gunnarsdóttur um ferðakostnað ráðherra.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver er heildarkostnaður ráðuneytisins vegna ferða ráðherra frá því að núverandi ríkisstjórn tók við völdum í janúar 2017, sundurliðað eftir innan- og utanlandsferðum?
Heildarkostnaður forsætisráðuneytis vegna ferða ráðherra, að ótöldum kostnaði vegna fylgdarmanna, var á tímabilinu 316.094 kr. vegna ferða innan lands og 1.862.630 kr. vegna ferða utan lands.