Ferill 136. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


147. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 170  —  136. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur um andlát í fangageymslum og fangelsum.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hversu margir einstaklingar hafa látið lífið á meðan þeir voru í vörslu lögreglu frá árinu 1965? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
     2.      Hversu margir einstaklingar hafa látið lífið innan veggja íslenskra fangelsa frá árinu 1965? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
     3.      Í hversu mörgum tilfellum hefur rannsókn farið fram á málsatvikum og aðdraganda andláts viðkomandi aðila?
     4.      Hverjir fara með rannsókn slíkra mála? Er það lögreglan, saksóknari eða einhver annar aðili sem annast slíkar rannsóknir? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
     5.      Hvernig eru slíkar rannsóknir framkvæmdar? Svar óskast sundurliðað eftir árum.


    Ráðuneytið óskaði eftir upplýsingum frá viðeigandi embættum vegna fyrirspurnarinnar og er svar þetta unnið í samræmi við þær upplýsingar sem bárust. Vegna þess tíma sem svörum við skriflegum fyrirspurnum er markaður reyndist ekki unnt að bíða frekari upplýsinga og tekur svar ráðherra mið af því.
    Fangelsismálastofnun ríkisins var stofnuð árið 1989. Fyrir þann tíma annaðist dómsmálaráðuneytið daglega yfirstjórn á rekstri fangelsa. Gögn er varða fjölda andláta í fangelsum frá árunum 1965–1988 eru vistuð í Þjóðskjalasafni Íslands, sbr. 15. gr. laga um opinber skjalasöfn, nr. 77/2014. Ekki vannst tími til að afla þeirra gagna við vinnslu þessa svars.
    Fjöldi andláta í fangelsum frá stofnun Fangelsismálastofnunar ríkisins 1. janúar 1989 hefur verið sem hér segir:

        1993:    1 einstaklingur
        1998:    3 einstaklingar
        2004:    1 einstaklingur
        2005:    1 einstaklingur
        2007:    2 einstaklingar
        2012:    1 einstaklingur
        2013:    2 einstaklingar
        2017:     1 einstaklingur lést á sjúkrahúsi í kjölfar sjálfsvígstilraunar í fangelsi tveimur dögum áður.

    Andlát í vörslu lögreglu og í fangelsum voru rannsökuð hjá lögreglu til 1. júlí 1997 en af ríkissaksóknara frá þeim tíma til 1. janúar 2016. Þá tók embætti héraðssaksóknara við rannsókn slíkra mála, sbr. 1. mgr. 35. gr. b lögreglulaga, nr. 90/1996, með síðari breytingum. Með lögum nr. 62/2016 var sett á fót eftirlitsnefnd með störfum lögreglu og er hlutverk hennar m.a. að taka til athugunar mál þegar maður lætur lífið í tengslum við störf lögreglu óháð því hvort grunur er um refsivert brot, sbr. c-lið 1. mgr. 35. gr. a laganna. Eftir sem áður fer héraðssaksóknari með rannsókn slíkra mála, sjá einnig 2. mgr. 52. gr. laga um meðferð sakamála, nr. 88/2008. Um framkvæmd þeirra gilda almennar reglur um rannsóknir slíkra mála. Ekki er unnt að svara nánar um framkvæmdir einstakra rannsókna.