Ferill 17. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 17  —  17. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um undirritun og fullgildingu valfrjálsrar bókunar við alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi.


Flm.: Halldóra Mogensen, Björn Leví Gunnarsson, Helgi Hrafn Gunnarsson, Jón Þór Ólafsson, Smári McCarthy, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.


    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni fyrir Íslands hönd að undirrita og fullgilda valfrjálsa bókun við alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi, sem var samþykkt á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 10. desember 2008. Undirritun bókunarinnar fari fram eigi síðar en í júní 2018 og fullgildingu hennar skal lokið eigi síðar en við árslok 2018.

Greinargerð.

    Tillagan var áður flutt á 147. löggjafarþingi (101. mál) en náði ekki fram að ganga og er nú endurflutt óbreytt. Alþjóðasamningur um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi (ASEFMR) var samþykktur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna hinn 16. desember 1966, undirritaður fyrir Íslands hönd hinn 30. desember 1968 og fullgiltur 22. ágúst 1979. Í inngangsorðum samningsins segir að þau ríki sem séu aðilar að samningnum hafi í huga að viðurkenning á meðfæddri göfgi mannsins og jöfnum óaðskiljanlegum réttindum allra manna sé grundvöllur frelsis, réttlætis og friðar í heiminum. Í inngangsorðum viðurkenna aðildarríki hans að sú hugsjón að menn séu frjálsir, óttalausir og þurfi ekki að líða skort rætist því aðeins að sköpuð verði skilyrði til þess að allir geti notið efnahagslegra, félagslegra og menningarlegra réttinda, jafnt sem borgaralegra og stjórnmálalegra réttinda. Með fullgildingu samningsins á Íslandi var ákveðnum efnahagslegum, félagslegum og menningarlegum mannréttindum veitt vernd sem þau höfðu ekki notið áður. Var með fullgildingu samningsins þannig stigið stórt skref í sögu mannréttindaverndar hérlendis.
    Á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 10. desember 2008 var samþykkt valfrjáls bókun við ASEFMR sem fól í sér stofnun kærunefndar sem starfar samkvæmt ASEFMR og hefur úrskurðarvald gagnvart samningsaðilum um brot gegn ákvæðum samningsins. Vinna við bókun þessa hefur staðið yfir síðan á 10. áratug síðustu aldar en í kjölfar samþykkt hennar á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna hófst undirritun 24. september 2009. Síðan þá hafa 48 ríki gerst aðilar að samningnum. Kæruleiðin sem kveðið er á um í bókuninni hefur verið virk síðan 2013 og hafa nú fyrstu úrskurðir fallið.
    Árið 1979 fullgilti Ísland tvo alþjóðasamninga Sameinuðu þjóðanna. Þar var annars vegar um að ræða alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og hins vegar um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi. Samhliða fullgildingu alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi var fullgild valfrjáls bókun við samninginn sem kom á fót kærunefnd og nefnist hún mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna. Nefndin starfar þó aðeins samkvæmt alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og tekur þannig aðeins á úrlausnarefnum er varða fyrstu kynslóðar mannréttindi. Með fullgildingu valfrjálsrar bókunar við ASEFMR yrði komið á fót sambærilegri kærunefnd fyrir brot gegn þeim samningi og mundu efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi þannig hljóta aukna vernd sambærilega þeirri sem gilt hefur um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi síðan 1979.
    Á síðasta ári fór fram allsherjarúttekt mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna á stöðu mannréttindamála á Íslandi. Í skýrslunni var farið yfir hvernig íslensk stjórnvöld hafa fylgt eftir tilmælum fyrri úttektar Sameinuðu þjóðanna og greint frá til hvaða aðgerða hefur verið gripið til að bæta stöðu mannréttindamála á Íslandi. Í úttektinni var bent á að Ísland hefur fullgilt allar valfrjálsar bókanir við þá mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem það er aðili að, nema bókanir við ASEFMR, samning gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu og þriðju bókun við barnasáttmálann. Í allsherjarúttektinni voru íslensk stjórnvöld hvött til að fullgilda valfrjálsa bókun við ASEFMR. Ekki var tekin sérstök afstaða til skýrslu stjórnvalda um allsherjarúttekt Sameinuðu þjóðanna á stöðu mannréttinda sem gefin var út 1. ágúst 2016 hvort látið yrði af undirritun og fullgildingu bókunarinnar.
    Ljóst er að á undanförnum árum og áratugum hefur vægi efnahagslegra, félagslegra og menningarlegra réttinda aukist svo um munar. Með undirritun og fullgildingu valfrjálsrar bókunar við ASEFMR mætti stuðla að aukinni vernd þessara réttinda. Yrði þannig komið á sambærilegri kæruleið fyrir þau réttindi sem varin eru í alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi. Langt er orðið síðan Ísland varð aðili að þessum samningi og staðfesti mikilvægi réttindanna sem hann verndar, bæði með breytingum á lögum og stjórnarskrá en einnig fyrir dómstólum. Með því að undirrita og fullgilda valfrjálsa bókun við ASEFMR verður kærunefnd sem starfar samkvæmt samningnum kleift að taka við erindum frá einstaklingum á Íslandi. Með því að stíga þetta skref má auka vernd þessara mikilvægu réttinda og er því lagt til að Alþingi álykti að fela ríkisstjórninni að undirrita fyrir Íslands hönd og fullgilda valfrjálsu bókunina við alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi.