Ferill 29. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 29 — 29. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og menningarmálaráðherra um samræmd próf.
Frá Birni Leví Gunnarssyni.
1. Hvert er hlutverk og markmið samræmdra prófa í grunnskólum samkvæmt lögum og reglugerðum?
2. Er hlutverkið í samræmi við vísindalega þekkingu á samræmdum prófum og áhrifum af notkun þeirra á nemendur og menntun? Hvaða rannsóknir á framkvæmd samræmdra prófa er stuðst við í fyrirkomulagi samræmdra prófa hér á landi?
3. Á hvaða rannsóknum um notkun á samræmdum prófum eða rökum var byggt þegar reglugerð um breytingu á reglugerð um innritun nemenda í framhaldsskóla, nr. 1199/2016, var sett, nánar tiltekið c-liður 1. gr.?
Skriflegt svar óskast.