Ferill 61. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 63  —  61. mál.




Fyrirspurn


til umhverfis- og auðlindaráðherra um varnir gegn loftmengun frá skipum.

Frá Smára McCarthy og Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir fullgildingu VI. viðauka Marpol-samningsins frá 19. maí 2005, um varnir gegn loftmengun frá skipum?
     2.      Hefur verið gerð úttekt á nauðsynlegum framkvæmdum við hafnir og raforkudreifikerfi til að styðja við að skip við bryggju séu almennt keyrð á rafmagni úr landi í stað ljósavéla?
     3.      Hversu mikil mengun (t.d. CO2, NO x og svifryk) kemur nú frá skipum meðan þau liggja í höfn? Hvernig hefur mengunin þróast á undanförnum árum?
     4.      Hyggst ráðherra leggja til bann við notkun svartolíu í skipum?


Skriflegt svar óskast.