Ferill 3. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Prentað upp.
Þingskjal 114 — 3. mál.
Flutningsmenn.
3. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2018.
Frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, Önnu Kolbrúnu Árnadóttur, Bergþóri Ólasyni, Birgi Þórarinssyni, Gunnari Braga Sveinssyni, Sigurði Páli Jónssyni og Þorsteini Sæmundssyni.
1. Á undan 42. gr. komi tvær nýjar greinar, svohljóðandi:
a. (42. gr.)
Við 3. mgr. 2. gr. laganna bætast tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:
16. Sala bóka, jafnt frumsaminna sem þýddra, þ.m.t. nótnabóka með og án texta, sem og hljóðupptökur af lestri bóka. Sama gildir um sölu á geisladiskum og öðrum sambærilegum miðlum með bókartexta, sem og sölu á rafrænum útgáfum bóka.
17. Áskrift að prent-, ljósvaka- og netmiðlum.
b. (43. gr.)
6. tölul. 2. mgr. 14. gr. laganna fellur brott.
2. Í stað „38.–46. gr.“ í 8. mgr. 48. gr. kemur: 38.–48. gr.