Ferill 95. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 162 — 95. mál.
Skýrsla
Íslandsdeildar Alþjóðaþingmannasambandsins fyrir árið 2017.
1. Inngangur.
Af þeim fjölmörgu og margþættu málum sem fjallað var um á vettvangi Alþjóðaþingmannasambandsins (IPU) á árinu 2017 eru nokkur atriði sem Íslandsdeildinni þykja standa upp úr með tilliti til markmiða sambandsins sem er að vinna að friði og samstarfi meðal þjóða og treysta lýðræði og þjóðkjörin fulltrúaþing í sessi.
Fyrst ber að nefna umræðu um það hvernig efla megi menningarlega fjölhyggju og frið með samræðum um trúarleg og samfélagsleg ágreiningsefni. Lögð var áhersla á mikilvægi þess að koma í veg fyrir umburðarleysi, vantraust og ofbeldi. Í ályktun um efnið var kallað eftir auknu gagnsæi, ábyrgð og virðingu fyrir mannréttindum og lögum sem nauðsynlegum grunni fyrir fjölbreytt og sjálfbær samfélög. Einnig var áhersla lögð á að koma í veg fyrir mannréttindabrot og mismunun í tengslum við þjóðaruppruna eða trú og skapa aðstæður fyrir fjölmenningarleg samfélög. Það megi m.a. gera með því að bæta menntun og styrkja þjóðþing heims.
Jafnframt var ályktað um aukið alþjóðlegt samstarf um ný markmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun með áherslu á konur sem drifkraft þróunar. Þá var mikið rætt um stöðu kvenna í þjóðþingum heims og hvernig auka megi aðgengi þeirra að þátttöku í stjórnmálum. Einnig fór fram almenn umræða um hvernig hægt væri að berjast gegn misrétti í heiminum og þjóðþing heims hvött til að beina sjónum sínum í auknum mæli að jafnréttismálum.
Á vorþingi IPU fór fram utandagskrárumræða um alþjóðlegar aðgerðir í baráttunni gegn hungursneyð í nokkru löndum Afríku og Jemen. Þingið ályktaði um málið og kallaði m.a. eftir aðgerðum frá þjóðþingum til að bjarga milljónum mannslífa frá hungri og þurrkum. Stjórnvöld voru hvött til að styrkja mannúðaraðgerðir til að afstýra frekara hættuástandi. Auk þess var áréttað að flóttamenn á svæðinu og í nágrannaríkjum væru sérstaklega berskjaldaðir í ríkjandi hættuástandi og var kallað eftir aðgerðum aðildarríkjanna þeim til aðstoðar. Jafnframt var á haustþingi IPU ályktað um hvernig binda mætti enda á alvarlegt hættuástand, ofsóknir og árásir á Róhingja og tryggja að þeir gætu snúið öruggir til heimalands síns, Mjanmar.
Enn fremur var í brennidepli á árinu umræða um hlutverk þjóðþinga við að virða meginregluna um að hlutast ekki til um innanlandsmálefni fullvalda ríkja. Þá var ályktað um fjölbreytileika mannlífs í tilefni af 20 ára afmæli alþjóðlegrar yfirlýsingar um lýðræði. Þar var m.a. rík áhersla lögð á jafnrétti kynjanna, frjálsar kosningar, sjálfstæði og frelsi fjölmiðla og verndun réttinda minnihlutahópa í samfélögum.
Af öðrum stórum málum sem tekin voru til umfjöllunar á þingum IPU árið 2017 má nefna hryðjuverkastarfsemi og baráttuna gegn henni, stríðið í Sýrlandi og alvarlegt ástand mannúðarmála, málefni innflytjenda og flóttamanna, og lýðræði og ungt fólk. Þá var umræða um netvæðingu þjóðþinga og samfélagsmiðla.
Einnig ber að nefna mikilvægt starf IPU við að efla lýðræði en mörg aðildarþing sambandsins eru ekki lýðræðislega kjörin og í sumum fer ekkert eiginlegt löggjafarstarf fram. Sem dæmi um slíkt starf árið 2017 má nefna svæðisbundnar málstofur um þátttöku ungs fólks í stjórnmálum í Afríku. Enn fremur gefur Alþjóðaþingmannasambandið út handbækur og skýrslur fyrir þingmenn til að hjálpa þeim að hafa áhrif í ólíkum málaflokkum. Á árinu 2017 var m.a. gefin út skýrsla um helstu stefnur varðandi málarekstur og lagasetningu í tengslum við loftslagsbreytingar.
2. Almennt um IPU.
Aðild að IPU eiga nú 178 þjóðþing en aukaaðild að sambandinu eiga ellefu svæðisbundin þingmannasamtök. Markmið IPU er að stuðla að skoðanaskiptum þingmanna frá öllum heimshornum um alþjóðleg málefni, vinna að friði og samstarfi meðal þjóða og treysta lýðræði og þjóðkjörin fulltrúaþing í sessi. Áhersla er lögð á að standa vörð um mannréttindi í heiminum sem eins grundvallarþáttar lýðræðis og þingræðis. Þá vinnur IPU að styrkingu þjóðþinga og aðstoðar við þróun lýðræðislegra vinnubragða innan þeirra. Sambandið styður starfsemi Sameinuðu þjóðanna og á margvíslegt samstarf við stofnanir þeirra. Höfuðstöðvar sambandsins eru í Genf, en sambandið rekur jafnframt skrifstofu í New York.
IPU heldur tvö þing á ári, að vori sem haldið er í einu af aðildarríkjum sambandsins og að hausti sem er haldið í Genf, nema annað sé ákveðið sérstaklega. Auk þess heldur sambandið alþjóðlegar ráðstefnur og málstofur á ári hverju, oft um málefni sem eru efst á baugi innan Sameinuðu þjóðanna hverju sinni og þá gjarnan í tengslum við tiltekna ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Þá eru haldnar námsstefnur fyrir þjóðþing sem óska eftir slíku um ýmsa þætti löggjafarstarfsins og eflingu lýðræðis.
Fjórar fastanefndir starfa innan Alþjóðaþingmannasambandsins:
1. nefnd um friðar- og öryggismál,
2. nefnd um sjálfbæra þróun, efnahags- og viðskiptamál,
3. nefnd um lýðræði og mannréttindamál,
4. nefnd um málefni Sameinuðu þjóðanna.
Ráð IPU, sem í eiga sæti þrír fulltrúar frá hverri landsdeild (fulltrúum fækkar í tvo ef sendinefnd samanstendur ekki af fulltrúum beggja kynja í fleiri en þrjú þing í röð), markar stefnu samtakanna og hefur umsjón með starfi nefnda og vinnuhópa. Á milli funda hefur 17 manna framkvæmdastjórn umsjón með daglegum rekstri samtakanna, undirbýr fundi ráðsins og fylgir eftir ákvörðunum þess. Auk fastanefnda sambandsins skila aðrar nefndir og vinnuhópar sem starfa innan sambandsins skýrslum til ráðsins til afgreiðslu, en um er að ræða nefnd um málefni Sameinuðu þjóðanna, nefnd um mannréttindi þingmanna, nefnd um málefni Miðausturlanda, vinnuhóp um málefni Kýpur, nefnd til að auka virðingu fyrir alþjóðlegum mannúðarlögum, undirbúningsnefnd kvennafundar IPU og vinnuhóp um samstarf kynjanna.
Nefnd um mannréttindi þingmanna vinnur mikið starf á milli þinga og gefur út skýrslu fyrir hvert þing IPU þar sem fjallað er um brot á mannréttindum þingmanna, hvort sem um er að ræða fangelsun, hótanir, barsmíðar, mannshvarf eða dauðsfall. Nefndin heimsækir viðkomandi ríki, ræðir við málsaðila og aflar gagna. Málum er fylgt eftir, oft árum saman, þar til niðurstaða fæst. Nefndin hefur það að markmiði að styrkja þjóðþing við að tryggja öryggi og friðhelgi þingmanna svo að þeir geti sinnt starfi sínu á lýðræðislegan og öruggan hátt. Ráð IPU samþykkir á hverju þingi ályktanir sem grundvallast á skýrslu nefndarinnar.
Ályktanir IPU eru ekki bindandi fyrir þjóðþing aðildarríkjanna. Þær endurspegla hins vegar umræðu um mikilvæg málefni sem ýmsar þjóðir glíma við. Vegna virkrar þátttöku þingmanna í umræðum á þingum IPU og ólíkra sjónarmiða þeirra hafa alþjóðastofnanir lagt áherslu á að fylgjast vel með ályktunum IPU, enda hafa þær iðulega bent á nýjar leiðir og hugmyndir að lausn mála.
3. Skipan og starfsemi Íslandsdeildar Alþjóðaþingmannasambandsins.
Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins var kosin á þingfundi 26. janúar 2017. Aðalmenn voru kosnir Birgir Ármannsson, formaður, þingflokki Sjálfstæðisflokks, Birgitta Jónsdóttir, varaformaður, þingflokki Pírata, og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingflokki Sjálfstæðisflokks. Varamenn voru Vilhjálmur Árnason, þingflokki Sjálfstæðisflokks, Halldóra Mogensen, þingflokki Pírata, og Valgerður Gunnarsdóttir, þingflokki Sjálfstæðisflokks. Arna Gerður Bang var ritari deildarinnar. Íslandsdeildin hélt fjóra fundi á árinu 2017, en á þeim fór aðallega fram undirbúningur fyrir þátttöku í þingum IPU.
14. desember var ný Íslandsdeild kosin í kjölfar alþingiskosninganna 28. október og gildir sú kosning deildarinnar fyrir allt kjörtímabilið samkvæmt þingsköpum. Þingið getur þó hvenær sem er kosið að nýju ef fyrir liggur beiðni meiri hluta þingmanna þar um. Aðalmenn eru Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, formaður, þingflokki Sjálfstæðisflokks, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingflokki Miðflokksins, og Ágúst Ólafur Ágústsson, þingflokki Samfylkingar. Varamenn eru Bergþór Ólason, þingflokki Miðflokksins, Helga Vala Helgadóttir, þingflokki Samfylkingar, og Jón Gunnarsson, þingflokki Sjálfstæðisflokks.
4. Fundir IPU 2017.
IPU heldur tvo þingfundi árlega, vorþing og haustþing. Þá sækir fjöldi IPU-þingmanna árlegan fund IPU sem er haldinn í febrúar í samstarfi við Sameinuðu þjóðirnar. Tveir norrænir samráðsfundir eru haldnir árlega til að fara yfir málefni komandi þings og samræma afstöðu Norðurlanda eins og hægt er. Norðurlöndin skiptast á um að fara með formennsku í norræna hópnum og gegndi Ísland formennsku á árinu. Báðir fundirnir voru haldnir á Íslandi, sá fyrri 17. mars í Keflavík og sá síðari 22. september í Reykjavík. Jafnframt heldur IPU reglulega ráðstefnur og fundi á milli þingfunda.
Árið 2017 tók Íslandsdeildin þátt í vor- og haustþingi, norrænum samráðsfundum og árlegum fundi IPU og Sameinuðu þjóðanna. Hér á eftir fylgja í tímaröð frásagnir af fundum sem Íslandsdeildin sótti.
Sameiginlegur fundur IPU og Sameinuðu þjóðanna í New York 13.–14. febrúar 2017.
Alþjóðaþingmannasambandið og Sameinuðu þjóðirnar stóðu fyrir sameiginlegum fundi 13.–14. febrúar í tengslum við ný þróunarmarkmið Sameinuðu þjóðanna til ársins 2030. Þema fundarins var málefni hafsins: Verndun hafs, jarðar og mannlegrar velferðar. Af hálfu Íslandsdeildar Alþjóðaþingmannasambandsins sóttu fundinn Birgir Ármannsson, formaður, og Halldóra Mogensen, auk Örnu Gerðar Bang, ritara Íslandsdeildar. Fundurinn var haldinn í aðalstöðvum Sameinuðu þjóðanna þar sem 200 þingmenn frá aðildarríkjum IPU, auk sérfræðinga og embættismanna, tóku þátt með það að markmiði að stuðla að þingræðislegum aðgerðum til að ná 14. þróunarmarkmiði sem fjallar um verndun og sjálfbæra nýtingu sjávar.
Forseti allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna, Peter Thomson, hélt opnunarávarp fundarins og varaði við afleiðingum þess að virða að vettugi hnignandi ástand sjávar. Hann sagði nauðsynlegt að horfast í augu við þá staðreynd að án heilbrigðs og sjálfbærs úthafs sé mannlíf á jörðinni í hættu. Þá lagði hann áherslu á mikilvægt hlutverk þingmanna við að snúa þróuninni við. Hann sagði stefnumótun og lagasetningu lykilatriði til að koma aftur á sjálfbærni í heimshöfunum.
Forseti IPU, Saber Chowdhury, lagði í máli sínu áherslu á hlutverk þingmanna við verndun hafsins og sagði fund sem þennan gullið tækifæri fyrir þingmenn til að öðlast aukinn skilning og deila reynslu sinni af þeim fjölmörgu þáttum sem hefðu áhrif á ástand sjávar eins og loftslagsbreytingar, mengun og ofveiði. Þá hvatti hann þingmenn til að beina sjónum sínum í auknum mæli að vistkerfinu sem margir tækju sem sjálfsögðum hlut á þeim fölsku forsendum að það gæti alltaf endurnýjað sig.
Þátttakendur ályktuðu í lok fundarins að mikilvægustu aðgerðir til verndar hafsvæðum byggðust á lagasetningu og reglugerðum, þ.m.t. verndarsvæðum, reglum um fiskiðnað og banni við notkun plastpoka og frauðplasts. Nauðsynlegt væri að hugarfarsbreyting ætti sér stað bæði í þróunarríkjum og þróuðum ríkjum þar sem hugarfar einkenndist af því að auka efnahagsvöxt og leiða hjá sér áhyggjur af afleiðingum fyrir komandi kynslóðir og jörðina.
Halldóra Mogensen tók þátt í umræðum og vitnaði m.a. í texta úr skýrslu frá 2012, skrifaða af 21 fyrrum vinningshafa Blue Planet Prize frá 2012, þar sem segir að ef komi til algjörs og fordæmalauss hættuástands verði samfélög að grípa til dramatískra aðgerða til að koma í veg fyrir fall siðmenningar. Þá breytum við annaðhvort hegðun okkar og byggjum upp algjörlega nýja gerð samfélags eða núverandi samfélögum verði breytt fyrir okkur. Þá spurði Halldóra sérfræðinga í pallborði hvort þeir teldu nauðsynlegt að umbreyta hagkerfi nútímans til að minnka ofnýtingu auðlinda. Svar pallborðsins var að þróun og menntun almennings væri nauðsynleg þegar horft væri til sjálfbærni samfélaga. Þá var Ísland tekið sem dæmi um góða nýtingu á fiskafurðum þar sem allir hlutar fisksins væru nýttir sem m.a. stuðlaði að vöru- og atvinnusköpun.
Jafnframt tók Halldóra Mogensen til máls í umræðum um sjálfbæra framleiðslu, neyslumynstur og ábyrgð fyrirtækja og benti á að ekki væri hægt að skella ábyrgðinni á neytendur því fæstir hefðu efnahagslegar forsendur til að velja framleiðsluvörur sem væru unnar á sjálfbæran hátt. Þá væri mikilvægt að skoða það sérstaklega að fyrirtæki störfuðu innan manngerðra ramma eða skipulagsheilda sem hefðu nýst okkur vel hingað til en spurning væri hvort þau nýttust okkur eins vel í framtíðinni. Þá spurði hún hvenær við ætluðum að forgangsraða þannig að við settum velferð mannfólksins, dýra og plánetunnar ofar hagnaðarsjónarmiðum. Þá óskaði hún eftir áliti á því hvort ósjálfbær framleiðslu- og neytendamynstur sem einkenndu samfélög gætu verið afleiðing af úreltum hvötum í efnahagskerfum nútímans og hvort ekki væri rétt að horfa til þess að breyta þeim til að bjarga jörðinni. Svar pallborðsins var á þá leið að ef mannfólkið héldi áfram að neyta hluta sem nýttust okkur ekki á þann hátt að auka velferð okkar þá væri svarið já, við neyddumst til að breyta þeim neyslumynstrum okkar. Stuðla mætti að slíkum breytingum með lagasetningu og fræðslu um t.d. skaðsemi plastumbúða um neysluvörur.
Enn fremur minnti framkvæmdastjóri IPU, Martin Chungong, þátttakendur á að Alþjóðaþingmannasambandið hefði nýlega gefið út í samvinnu við United Nations Development Programme (UNDP) leiðbeiningar um hvernig þjóðþing gætu innleitt þróunarmarkmið Sameinuðu þjóðanna í löggjöf sína. Þá sagði hann ráðstefnu sem þessa gera þingmönnum kleift að leggja sitt af mörkum til verkefna Sameinuðu þjóðanna og alþjóðlegrar lagasetningar.
Norrænn samráðsfundur í Keflavík 17. mars.
Fyrri norræni samráðsfundurinn var haldinn í Keflavík 17. mars til undirbúnings þátttöku í 136. vorþingi IPU sem haldið var í Bangladess 31. mars – 3. apríl 2017. Af hálfu Íslandsdeildar sóttu fundinn Birgir Ármannsson, formaður, Birgitta Jónsdóttir, varaformaður, og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir auk Örnu Gerðar Bang, ritara Íslandsdeildar. Birgir Ármannsson stýrði fundinum.
Fyrsta mál á dagskrá var umræða um niðurstöður haustþings IPU í Genf í október 2016 og annarra ráðstefna og funda sem nefndarmenn hafa sótt á vegum IPU-þingsins síðustu sex mánuðina. Þá var rætt um lausar stöður fyrir fulltrúa tólfplús-hópsins í embætti á vegum IPU en hópurinn er samstarfsvettvangur vestrænna lýðræðisríkja. Nefndarmenn voru sammála um mikilvægi þess að norrænu ríkin ættu fulltrúa á sem flestum fundum hjá IPU, ekki síst hjá ungum þingmönnum, en sá umræðuvettvangur er mjög virkur og hefur vaxið á undanförnum misserum. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir hefur tekið þátt í þeim fundum fyrir hönd Íslandsdeildar.
Anti Avsan, varaformaður sænsku landsdeildar IPU, tók til máls en hann er formaður nefndar um málefni Sameinuðu þjóðanna hjá IPU. Hann sagði frá helstu verkefnum nefndarinnar og lagði áherslu á mikilvægi þess að norrænu landsdeildirnar tækju virkan þátt í starfi nefndarinnar. Krister Örnfjader, formaður sænsku landsdeildar IPU sem gegnir formennsku undirnefndar um fjármál IPU, skýrði frá vinnu nefndarinnar og helstu verkefnum.
Á vorþinginu fór fram almenn umræða um baráttuna gegn misrétti í heiminum. Siv Friðleifsdóttir, formaður Velferðarvaktarinnar á Íslandi, verkefnisstjóri Norrænu velferðarvaktarinnar og sérfræðingur í velferðarráðuneytinu hélt erindi um efnið og Velferðarvaktina, auk þess sem hún svaraði spurningum fundargesta. Enn fremur var farið yfir helstu umræðuefni fastanefnda á vorþinginu og skiptingu þingmanna í þær. Þá bauð formaður Íslandsdeildar norrænu landsdeildunum til vinnukvöldverðar mánudaginn 3. apríl í Dhaka.
136. þing IPU í Bangladess 31. mars – 3. apríl.
Af hálfu Íslandsdeildar þingmannanefndar IPU sóttu fundinn Birgitta Jónsdóttir, varaformaður, og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir auk Örnu Gerðar Bang, ritara Íslandsdeildar.
Helstu mál á dagskrá voru ályktanir um hvernig stuðla mætti að auknu alþjóðlegu samstarfi um ný markmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun með sérstaka áherslu á konur sem drifkraft þróunar og hlutverk þjóðþinga við að koma í veg fyrir afskipti utanaðkomandi af málefnum fullvalda ríkja. Jafnframt var almenn umræða um hvernig hægt væri að berjast gegn misrétti í heiminum. Þá fór fram utandagskrárumræða um alþjóðlegar aðgerðir í baráttunni gegn hungursneyð í nokkrum ríkja Afríku og Jemen. Enn fremur var haldinn kvennafundur dagana 31. mars og 2. apríl í tengslum við þingið þar sem m.a. var rætt um stöðu kvenna í þjóðþingum heims. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir tók þátt í umræðum á fundinum og sagði frá góðri stöðu jafnréttismála hér á landi og kvenna á þingi og í ráðherraembættum, en tók þó fram að enn mætti gera betur.
Um 1.200 þátttakendur sóttu þingið, þar af um 600 þingmenn (191 þingkona) frá 126 ríkjum, 46 þingforsetar og 36 varaþingforsetar.
Tólfplús-hópurinn, sem er samstarfsvettvangur vestrænna lýðræðisríkja, hittist að venju flesta morgna meðan á þinginu stóð. Á þeim fundum var farið yfir helstu mál þingsins og afstaða sendinefnda samræmd eins og hægt var, auk þess sem valdir voru fulltrúar hópsins í embætti og störf á vegum IPU. Fulltrúar tólfplús-hópsins í framkvæmdastjórn og stýrihópum IPU kynntu helstu niðurstöður síðustu funda stjórnarinnar og fundar stjórnarnefndar.
Sérstök nefnd um mannréttindi þingmanna gegnir veigamiklu hlutverki innan IPU og eru þingmenn kosnir til fimm ára setu í nefndinni. Birgitta Jónsdóttir var kosin annar tveggja fulltrúa tólfplús-hópsins í nefndina á þingfundi 5. apríl. Nefndin gefur út viðamikla skýrslu fyrir hvert þing. Á grundvelli skýrslunnar samþykkir ráð IPU fjölmargar ályktanir um mannréttindabrot gegn þingmönnum. Nefndin vinnur mikið starf á milli þinga þar sem hún fer yfir brot á mannréttindum þingmanna, hvort sem um er að ræða fangelsun, hótanir, barsmíðar, mannshvarf eða dauðsfall. Nefndin heimsækir viðkomandi lönd, ræðir við málsaðila og aflar gagna. Málum er fylgt eftir, oft árum saman, þar til niðurstaða fæst. Mál Birgittu gegn bandaríska ríkinu var til umræðu hjá nefndinni frá febrúar 2011 og var ályktun um málið samþykkt á fundi ráðsins á haustþingi samtakanna árið 2011.
Sjö tillögur að neyðarályktun voru lagðar fram við upphaf þingsins. Aðeins er hægt að taka fyrir eitt mál utan dagskrár á hverju þingi samkvæmt reglum IPU. Fyrir valinu varð sameiginleg tillaga Belgíu, Keníu og Bretlands um aðkallandi neyðarástand af völdum hungursneyðar og þurrka í hluta Afríku og Jemen. Í ályktuninni var kallað eftir aðgerðum frá þjóðþingum heims til að bjarga milljónum mannslífa frá hungri og þurrkum og þrýst á stjórnvöld að styrkja aðgerðir til að afstýra frekara hættuástandi. Eþíópía og Kenía eru á lista yfir þau tíu ríki heims sem taka á móti flestum flóttamönnum. Þessir flóttamenn eru sérstaklega berskjaldaðir í núverandi hættuástandi. Ályktun þingsins endurspeglaði kjarna umræðunnar og var hún samþykkt samhljóða.
Almenn umræða fór fram um pólitískt, efnahagslegt og félagslegt ástand í heiminum og var sjónum beint að misrétti. Birgitta Jónsdóttir og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir tóku báðar þátt í umræðunum fyrir hönd Íslandsdeildar. Birgitta lagði í ræðu sinni áherslu á þá staðreynd að aðeins örfáir valdamiklir einstaklingar ættu meira en 99% auðs í heiminum, en misskipting auðs er samkvæmt Oxfam (alþjóðasamtökum sem berjast gegn fátækt í heiminum) eitt stærsta vandamálið sem mannkynið stendur frammi fyrir. Hún gagnrýndi aðgerðaleysi stjórnvalda og sagði jafnvel fulltrúa valdamestu ríkja heims vanmáttuga gegn vandanum á meðan því væri ekki lýst yfir á heimsvísu að þessi misskipting væri fullkomlega óásættanleg. Þá benti hún á að ef öll aðildarríki IPU innleiddu að fullu mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna og þær fjölmörgu ályktanir IPU sem samþykktar hefðu verið undanfarna áratugi væri von um breytingar til aukins jafnréttis. Tíminn væri að renna út og yrði ekkert að gert til þess að draga úr ójöfnuði mundi það skapa eldfimt ástand sem yki enn frekar á óöryggi og torveldaði baráttuna gegn fátækt og fyrir auknu jafnrétti.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir lagði í ræðu sinni áherslu á mikilvægi þess að horft væri til kynjajafnréttis og menntunar ætti árangur að nást í baráttunni gegn misrétti og misskiptingu auðs í heiminum. Menntun væri okkar öflugasta vopn gegn misrétti og nauðsynlegt að bæði drengir og stúlkur hefðu jafnan aðgang að henni. Það væri skilyrði þess að samfélög næðu að þróast. Þá sagði hún jafnrétti kynjanna forgangsmál í bæði innanríkis- og utanríkisstefnu íslenskra stjórnvalda. Sú stefnumótun væri mikilvægur þáttur í því að styrkja velferð og tryggja jöfn tækifæri fyrir bæði karla og konur í samfélaginu.
Við lok almennrar umræðu samþykkti þingið yfirlýsingu þar sem helstu áhersluatriði umræðunnar voru dregin saman. Lögð var áhersla á að öfgakennt ójafnrétti væri afar kostnaðarsamt fyrir samfélög. Það hefði hamlandi áhrif á efnahagsvöxt, græfi undan lýðræði og sátt í samfélaginu og yki hættuna á ofbeldi og óöryggi.
Fastanefndirnar tóku fyrirframákveðin mál til umfjöllunar. Í 1. nefnd, um frið og alþjóðleg öryggismál, var rætt um hlutverk þjóðþinga við að koma í veg fyrir afskipti utanaðkomandi af málefnum fullvalda ríkja. Fulltrúar tólfplús-hópsins höfðu lýst yfir áhyggjum af efni ályktunarinnar og að umræða hennar og efnistök væru í andstöðu við alþjóðleg viðmið varðandi afskipti af málefnum fullvalda ríkja. Fulltrúar tólfplús-hópsins voru almennt sammála um mikilvægi þess að fylgja sérstaklega eftir störfum nefndarinnar og taka þátt í umræðum og atkvæðagreiðslu um breytingartillögur og afgreiðslu ályktunarinnar. Miklar umræður sköpuðust um ólík viðhorf til ályktunarinnar og voru lagðar fram 143 breytingartillögur við hana og voru 40% þeirra samþykkt og ályktunin í framhaldinu samþykkt. Birgitta Jónsdóttir og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir tóku báðar þátt í störfum nefndarinnar og greiddu atkvæði gegn samþykkt hennar. Birgitta tók til máls í umræðum um ályktunina og mótmælti efnistökum hennar harðlega auk fulltrúa fleiri Evrópuríkja.
Í 2. nefnd, um sjálfbæra þróun og efnahags- og viðskiptamál, var samþykkt einróma ályktun um hvernig stuðla mætti að auknu alþjóðlegu samstarfi um ný markmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun með sérstakri áherslu á konur sem drifkraft þróunar. Þá tók nefndin ákvörðun um að næsta umræðuefni hennar yrði um hvernig virkja mætti einkageirann við innleiðingu þróunarmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, með sérstakri áherslu á endurnýtanlega orku.
Í 3. nefnd, um lýðræði og mannréttindi, fór fram undirbúningsumræða um efni nefndarinnar tileinkað 20 ára afmæli alþjóðlegrar yfirlýsingar um lýðræði (Universal Declaration on Democracy) með áherslu á fjölbreytni mannlífsins. Birgitta Jónsdóttir tók þátt í störfum nefndarinnar og lagði áherslu á mikilvægi þess að vandað yrði til verka við gerð ályktunarinnar sem kynnt yrði á haustþingi IPU í Pétursborg.
Enn fremur fór fram umræða um samfélagsmiðla og hvernig þingmenn nýttu sér þá í starfi sínu. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir sagði frá reynslu sinni af notkun samfélagsmiðla og hvernig þeir hefðu haft áhrif á framgang hennar í stjórnmálum. Hún sagði samfélagsmiðla hafa leikið stórt hlutverk í að koma henni á framfæri sem stjórnmálamanni og m.a. skapað henni dýrmætan umræðuvettvang og nálægð við kjósendur sína.
Þá fordæmdi forseti IPU efnavopnaárásirnar sem gerðar voru á Khan Sheikhoun í Sýrlandi þar sem 88 manns, þar af 31 barn, fórust. Ráð IPU kom tvisvar saman á þinginu og afgreiddi fjölda mála. Aðildarríki IPU eru nú 178 talsins, en tvö ný aðildarríki voru boðin velkomin, Túvalú og Mið-Afríkulýðveldið. Rætt var um fjárhagsáætlun fyrir árin 2016 og 2017 og hún samþykkt auk þess sem yfirlit yfir skipulagða fundi var kynnt. Nefnd um mannréttindi þingmanna kynnti skýrslur um brot gegn mannréttindum þingmanna og samþykkti ráðið ályktanir á grundvelli þeirra.
Norrænn samráðsfundur í Reykjavík 22. september.
Síðari norræni samráðsfundurinn var haldinn 22. september í Reykjavík til undirbúnings þátttöku í 137. haustþingi IPU í Pétursborg 14.–18. október 2017. Af hálfu Íslandsdeildar sóttu fundinn Birgir Ármannsson, formaður, Birgitta Jónsdóttir, varaformaður, og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir auk Örnu Gerðar Bang, ritara Íslandsdeildar. Birgir Ármannsson stýrði fundinum.
Fyrsta mál á dagskrá var umræða um niðurstöður vorþings IPU í Bangladess í mars 2017 og annarra ráðstefna og funda sem nefndarmenn höfðu sótt á vegum IPU-þingsins síðustu sex mánuðina. Þá greindi fulltrúi norræna hópsins í framkvæmdastjórn IPU, Gunvor Eldegard, frá áherslum og umræðum framkvæmdastjórnar og stýrihóps tólfplús-hópsins. Þar var m.a. rætt um framboð tveggja kandídata til forseta IPU en nýr forseti var kosinn á haustþinginu í Pétursborg. Tvær konur voru í framboði og voru þær báðar frá Suður-Ameríku. Þær kynntu sig fyrir nefndarmönnum á fundi tólfplús-hópsins í Pétursborg og vildu nefndarmenn ekki taka afstöðu til framboða þeirra fyrr en eftir þá kynningu.
Á síðasta þingi IPU var tekin ákvörðun um að þiggja boð Rússa um að halda næsta haustþing í Pétursborg. Skiptar skoðanir voru meðal nefndarmanna um málið í ljósi átakanna í Úkraínu og innlimunar Krímskaga í Rússland. Norræni hópurinn var almennt á móti því að halda fundinn í Pétursborg en þar sem ákvörðun hafði verið tekin ætluðu allar landsdeildirnar að taka þátt. Nefndarmenn ræddu um mikilvægi þess að koma inn á mannréttindabrot Rússa í ræðum sínum og vekja athygli á óánægju með framferði þeirra gagnvart Úkraínu.
Nefndarmenn voru sammála um mikilvægi þess að norrænu ríkin ættu fulltrúa á sem flestum fundum hjá IPU, ekki síst hjá ungum þingmönnum, en sá umræðuvettvangur er mjög virkur og hefur vaxið á undanförnum misserum. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir hefur tekið þátt í þeim fundum fyrir hönd Íslandsdeildar. Þá kynnti sænski þingmaðurinn Krister Örnfjäder framgang vinnu undirnefndar um fjármál IPU þar sem hann gegnir formennsku. Hann sagði fjármál IPU hafa verið eitt aðalumræðuefni stjórnarnefndar tólfplús-hópsins síðastliðin ár. Áhersla hefði verið lögð á að ná fram niðurskurði og lækkun ársgjalda aðildarríkja IPU og hefði það gengið eftir að mestu leyti. Örnfjäder gegnir einnig stöðu innri endurskoðanda IPU og greindi frá störfum nefndarinnar.
Enn fremur var farið yfir helstu umræðuefni haustþingsins og skiptingu þingmanna í fastanefndir. Umræðuefni fastanefndanna eru m.a. hlutverk þjóðþinga við að hafa eftirlit með aðgerðum vopnaðs herafla þjóðþinga sem tekur þátt í friðargæsluverkefnum Sameinuðu þjóðanna og hvernig virkja megi einkageirann við innleiðingu þróunarmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Einnig var rætt um áherslur kvennafundar IPU sem haldinn var 14. og 18. október þar sem m.a. voru pallborðsumræður um það hvernig tryggja mætti réttindi og framtíð kvenna og stúlkna í stríði og átökum.
Á haustþinginu fór fram almenn umræða um hvernig efla mætti menningarlega fjölhyggju og frið með samræðum um trúarleg og þjóðfræðileg ágreiningsefni og hélt Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar og Höfða friðarseturs, erindi um efnið og svaraði spurningum fundargesta. Hún sagði að þegar undanfarar átaka væru skoðaðir væri afar mikilvægt að taka viðvaranir alvarlega og bregðast fljótt við. Hlutverk þingmanna væri m.a. að bregðast við hatursáróðri og ögrunum, stuðla að friðaruppbyggingu í milliríkjaátökum og stuðla að auknu samstarfi milli þjóðþinga. Þá sagði hún mikilvægt að horfa til frumkvæðis og framtaks heimamanna í ferli og framkvæmd friðargæslu.
Undir lok fundar bauð formaður Íslandsdeildar IPU norrænu landsdeildunum til hádegisverðar í Pétursborg mánudaginn 16. október. Þá tók formaður sænsku landsdeildarinnar til máls og bauð nefndarmenn velkomna til norræns undirbúningsfundar í mars 2018 í Svíþjóð, en Svíþjóð tekur við formennsku í norræna hópnum eftir lok haustþingsins í Pétursborg. Tillögur um dagsetningu fundarins yrðu sendar nefndarmönnum fyrir lok árs 2017.
Birgir Ármannsson þakkaði fundargestum fyrir gagnlegar umræður og sagði frá fyrirhuguðum þingkosningum á Íslandi 28. október. Þær hefðu áhrif á þátttöku Alþingis í haustþinginu í Pétursborg en Birgitta Jónsdóttir mundi ein sækja þingið fyrir hönd Alþingis. Að lokum var rætt um framtíðarfyrirkomulag norrænu samráðsfundanna sem haldnir hafa verið tvisvar á ári, til skiptis í norrænu ríkjunum, til undirbúnings fyrir vor- og haustþing IPU. Voru nefndarmenn sammála um að núverandi fyrirkomulag væri ákjósanlegt þar sem fundirnir væru haldnir í höfuðborg viðkomandi formennskuríkis eða nágrenni hennar.
137. þing IPU í Pétursborg 14.–18. október 2017.
Af hálfu Íslandsdeildar þingmannanefndar IPU sótti fundinn Birgitta Jónsdóttir, varaformaður, auk Örnu Gerðar Bang, ritara Íslandsdeildar.
Helstu mál á dagskrá voru ályktun um fjölbreytileika mannlífs í tilefni af 20 ára afmæli alþjóðlegrar yfirlýsingar um lýðræði (Universal Declaration on Democracy). Jafnframt var almenn umræða um hvernig efla mætti menningarlega fjölhyggju og frið með samræðum um trúarleg og þjóðfræðileg ágreiningsefni. Þá fór fram utandagskrárumræða um hvernig binda mætti enda á alvarlegt hættuástand, ofsóknir og árásir á Róhingja og tryggja að þeir gætu snúið öruggir til heimalands síns, Mjanmar. Enn fremur var haldinn kvennafundur dagana 14. og 16. október í tengslum við þingið þar sem m.a. var rætt um stöðu kvenna í þjóðþingum heims. Um 1.876 þátttakendur sóttu þingið, þar af 829 þingmenn (249 þingkonur) frá 155 ríkjum, 82 þingforsetar og 65 varaþingforsetar. Er þetta fjölmennasta þing IPU sem haldið hefur verið frá upphafi.
Tólfplús-hópurinn hittist að venju flesta morgna meðan á þinginu stóð. Á þeim fundum var farið yfir helstu mál þingsins og afstaða sendinefnda samræmd eins og hægt var, auk þess sem valdir voru fulltrúar hópsins í embætti og störf á vegum IPU. Fulltrúar tólfplús-hópsins í framkvæmdastjórn og stýrihópum IPU kynntu helstu niðurstöður síðustu funda stjórnarinnar og fundar stjórnarnefndar.
Átta tillögur að neyðarályktun voru lagðar fram við upphaf þingsins. Aðeins er hægt að taka fyrir eitt mál utan dagskrár á hverju þingi samkvæmt reglum IPU. Fyrir valinu varð sameiginleg tillaga Marokkó, Indónesíu, Sameinuðu arabísku furstadæmanna, Bangladess, Kúveit, Írans, Súdans og Tyrklands um hvernig binda mætti enda á alvarlegt hættuástand, ofsóknir og árásir á Róhingja og tryggja að þeir gætu snúið öruggir til heimalands síns, Mjanmar. Ályktun þingsins endurspeglaði kjarna umræðunnar og var hún samþykkt samhljóða.
Almenn umræða fór fram um pólitískt, efnahagslegt og félagslegt ástand í heiminum og var sjónum beint að því hvernig efla mætti menningarlega fjölhyggju (e. pluralism) og frið í gegnum trúarlega og þjóðfræðilega umræðu. Birgitta Jónsdóttir tók þátt í umræðunum fyrir hönd Íslandsdeildar. Birgitta lagði í ræðu sinni áherslu á að aðgreining milli landa og landfræðihópa væri ekki það sem við ættum að horfa til þegar unnið væri að friði í heiminum enda hefði það ekki borið árangur fram að þessu. Heldur ætti að horfa til þess að við værum öll mannsbörn og bærum ábyrgð sem slík þvert á landamæri og manngerðar átakalínur.
Við lok almennrar umræðu samþykkti þingið yfirlýsingu þar sem helstu áhersluatriði umræðunnar voru dregin saman. Lögð var áhersla á að koma þyrfti í veg fyrir umburðarleysi, vantraust og ofbeldi. Í yfirlýsingunni er kallað eftir auknu gagnsæi, ábyrgð og virðingu fyrir mannréttindum og lögum sem nauðsynlegum grunni fyrir sjálfbær og fjölbreytt samfélög. Þá var lögð áhersla á nauðsyn þess að koma í veg fyrir mismunun og mannréttindabrot í tengslum við trú eða þjóðaruppruna og skapa grundvöll fyrir fjölmenningarleg samfélög, bæta menntun og styrkja þjóðþing.
Saber Chowdhury, forseti IPU, hélt erindi á lokadegi þingsins þar sem hann fjallaði um mikilvægi þess að aðildarríki IPU hefðu það að sameiginlegu markmiði að efla umburðarlyndi, berjast gegn hatursorðræðu og stuðla að friði. Sagði hann m.a.: „Við erum hér saman komin til að tala fyrir mikilvægi lýðræðis, réttlætis og jafnréttis.“ Þá sagði hann fulltrúa IPU vera heiminum innblástur þar sem þeir ynnu saman að markmiðum samtakanna, óháð kynþætti, kyni, stjórnmálaskoðun eða kynheigð. Enn fremur var rætt um málefni Sameinuðu þjóðanna, öryggismál í netheimum, útbreiðslu kjarnorkuvopna og aðkomu einkageirans að því að auka endurnýtanlega orkugjafa.
Fastanefndirnar tóku fyrirframákveðin mál til umfjöllunar. Í 1. nefnd, um frið og alþjóðleg öryggismál, voru umræður um hlutverk þjóðþinga við að hafa eftirlit með aðgerðum vopnaðs herafla þjóðþinga sem tekur þátt í friðargæsluverkefnum Sameinuðu þjóðanna. Einnig voru pallborðsumræður um innleiðingu fyrri ályktana IPU um öryggismál í netheimum. Í 2. nefnd, um sjálfbæra þróun og efnahags- og viðskiptamál, var rætt um hvernig virkja mætti einkageirann við innleiðingu þróunarmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, með sérstakri áherslu á endurnýtanlega orku. Einnig fór fram pallborðsumræður um notkun vísinda og rannsókna til að efla heilsuvernd.
Í 3. nefnd, um lýðræði og mannréttindi, var samþykkt ályktun tileinkuð 20 ára afmæli alþjóðlegrar yfirlýsingar um lýðræði með áherslu á fjölbreytni mannlífsins. Ályktunin ítrekar megináhersluatriði yfirlýsingarinnar, þ.m.t. jafnrétti kynjanna, sjálfstæði dómstóla, frjálsar og sanngjarnar kosningar, sjálfstæði og frelsi fjölmiðla og verndun réttinda minnihlutahópa í samfélögum.
Ráð IPU kom tvisvar saman á þinginu og afgreiddi fjölda mála. Fjögur ný aðildarríki voru boðin velkomin til starfa og eru þau Úsbekistan, Túrkmenistan, Vanúatú og Marshall-eyjar. Aðildarríki IPU eru nú 178 talsins. Rætt var um fjárhagsáætlun fyrir árin 2017 og 2018 og hún samþykkt auk þess sem yfirlit yfir skipulagða fundi var kynnt. Nefnd um mannréttindi þingmanna kynnti skýrslur um brot á mannréttindum þingmanna og samþykkti ráðið ályktanir á grundvelli þeirra.
Þá var nýr forseti IPU kosinn, tveir voru í framboði og bar mexíkóska þingkonan Cuevas Barrón sigur úr býtum með yfirgnæfandi meiri hluta atkvæða. Barrón tekur við forsæti til þriggja ára af Saber Chowdhury frá Bangladess sem var gerður að heiðursforseta IPU við þinglok. Var þetta söguleg kosning fyrir þær sakir að í fyrsta sinn voru tvær konur í framboði. Cuevas Barrón sagði það mikinn heiður að feta í fótspor Chowdhury og að hún mundi halda áfram með þau góðu verkefni sem hann var byrjaður á og stefna að auknum alþjóðlegum áhrifum IPU í forsetatíð sinni.
5. Ályktanir og yfirlýsingar IPU árið 2017.
Ályktanir 136. þings IPU vörðuðu eftirfarandi efni:
– Hlutverk þjóðþinga við að virða meginregluna um að hlutast ekki til um innanlandsmálefni fullvalda ríkja.
– Stuðla að auknu alþjóðlegu samstarfi um ný markmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun með sérstaka áherslu á konur sem drifkraft þróunar.
– Alþjóðlegar aðgerðir í baráttunni gegn hungursneyð í Afríku og Jemen.
Ályktanir 137. þings IPU vörðuðu eftirfarandi efni:
– Um fjölbreytileika mannlífs í tilefni af 20 ára afmæli alþjóðlegrar yfirlýsingar um lýðræði.
– Hvernig binda mætti enda á alvarlegt hættuástand, ofsóknir og árásir á Róhingja og tryggja að þeir gætu snúið öruggir til heimalands síns, Mjanmar.
Yfirlýsing 137. þings IPU:
– Hvernig efla megi menningarlega fjölhyggju og frið með samræðum um trúarleg og þjóðfræðileg ágreiningsefni.
Alþingi, 19. janúar 2018.
| Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, form. |
Ágúst Ólafur Ágústsson. | Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. |