Ferill 98. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 166 — 98. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000, með síðari breytingum (lenging fæðingarorlofs).
Flm.: Logi Einarsson, Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, Ágúst Ólafur Ágústsson, Guðjón S. Brjánsson, Guðmundur Andri Thorsson, Helga Vala Helgadóttir, Oddný G. Harðardóttir.
1. gr.
a. Í stað orðsins ,,þrjá“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: fimm.
b. Í stað orðsins ,,þremur“ í 3. málsl. 1. mgr. kemur: tveimur.
c. Í stað orðsins ,,níu“ í 1. málsl. 4. mgr. kemur: tólf.
2. gr.
a. Í stað orðsins ,,þrjá“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: fimm.
b. Í stað orðsins ,,þrjá“ í 3. málsl. 1. mgr. kemur: tvo.
c. Í stað orðsins ,,níu“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: tólf.
3. gr.
Greinargerð.
Með frumvarpi þessu er lagt til að sjálfstæður réttur hvers foreldris skv. 1. málsl. 1. mgr. 8. gr. laganna verði fimm mánuðir og að sameiginlegur réttur foreldra skv. 3. málsl. sömu málsgreinar verði tveir mánuðir. Sambærileg breyting er lögð til á 18. gr. þar sem kveðið er á um fæðingarstyrk til foreldris utan vinnumarkaðar. Sú skipting er í samræmi við niðurstöður starfshóps um framtíðarstefnu í fæðingarorlofsmálum sem skilaði velferðarráðuneytinu skýrslu í mars 2016. 1 Í starfshópnum sátu fulltrúar stéttarfélaga, sveitarfélaga og atvinnulífsins.
Í árslok 2012, í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur, voru samþykkt lög nr. 143/2012, um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, þar sem kveðið var á um lengingu fæðingarorlofs úr samtals níu mánuðum í tólf mánuði. Þegar ríkisstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks tók við völdum í maí 2013 var horfið frá þessum breytingum.
1 www.stjornarradid.is/media/velferdarraduneyti-media/media/skyrslur2016/11032016_Framtidarstefna_i_daedingarorlofsmalum.pdf