Ferill 210. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 293 — 210. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um skriflegt svar við fyrirspurn þingmanns.
Frá Birni Leví Gunnarssyni.
1. Hverjar voru helstu tímasetningar í vinnuferli við samningu og afhendingu svars þáverandi forsætisráðherra, núverandi fjármála- og efnahagsráðherra, við fyrirspurn á þskj. 680 (488. mál) á 146. þingi, þar á meðal á:
a. móttöku ráðherra á fyrirspurninni,
b. helstu áföngum í vinnslu svarsins,
c. móttöku ráðherra á svarinu til endanlegrar samþykktar?
2. Hvaða skýringar eru á þeim langa tíma sem það tók ráðherra að svara umræddri fyrirspurn í ljósi þess að vinnsla svarsins kallaði hvorki á sérstaka gagnaöflun né gagnavinnslu? Hjá hvaða aðila, ef einhverjum, dróst gerð svars við fyrirspurninni, þ.e. hjá yfirstjórn ráðuneytis, öðrum skrifstofum, ráðuneytisstjóra, aðstoðarmanni ráðherra, ráðherra, eða einhverjum öðrum sem kom að gerð svars?
3. Hvers vegna gerði ráðherra ekki skriflega grein fyrir því að ekki tækist að svara fyrirspurninni innan þess frests sem ákveðinn er, sbr. 6. mgr. 57. gr. laga um þingsköp Alþingis?
Skriflegt svar óskast.
Greinargerð.