Ferill 136. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 345  —  136. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur um sjálfsvíg á geðdeildum og meðferðarstofnunum.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hversu margir sjúklingar hafa framið sjálfsvíg eða látist af öðrum ástæðum á:
                  a.      geðdeildum Landspítalans,
                  b.      geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri,
                  c.      Vogi og öðrum meðferðarstofnunum, og þá hvaða stofnunum?
     2.      Hversu margir sjúklingar hafa slasast alvarlega við sjálfsvígstilraun á:
                  a.      geðdeildum Landspítalans,
                  b.      geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri,
                  c.      Vogi og öðrum meðferðarstofnunum, og þá hvaða stofnunum?


    Embætti landlæknis er vinnsluaðili og ábyrgðaraðili dánarmeinaskrár. Tilgangur dánarmeinaskrár er að safna í eina skrá dánarorsökum hér á landi þar sem beitt er alþjóðlegum flokkunarkerfum.
    Ekki liggur fyrir nákvæm tölfræði um sjálfsvíg á sjúkrahúsum á Íslandi. Þessa tölfræði er ekki hægt að fá úr dánarmeinaskrá hjá embætti landlæknis. Það orsakast af því að óljóst getur verið hvað skuli teljast sjálfsvíg á stofnun. Andlátið getur talist hafa átt sér stað á stofnun þótt verknaðurinn hafi átt sér stað annars staðar og viðkomandi verið fluttur á stofnun þar sem hann síðan andaðist. Ef sjálfsvíg verður á stofnun ber viðkomandi stofnun að skrá það hjá sér sem alvarlegt atvik og tilkynna það til embættis landlæknis. Að mati embættis landlæknis eru tilkynningar frá stofnunum um alvarleg atvik komnar í nokkuð gott lag.
    Þess má geta að gerður hefur verið samningur um að taka upp nýtt atvikaskráningakerfi á landinu öllu, Datix, sem er breskt og er nú notað í mörgum löndum. Embætti landlæknis hefur leitt innleiðingu þess hér á landi og er stefnt að því að það verði komið í notkun á öllum heilbrigðisstofnunum á næsta ári. Þetta kerfi felur ekki aðeins í sér skráningu atvika heldur verður þar til miðlægur grunnur um atvik sem hægt verður að vinna tölfræði úr.
    Eftirfarandi upplýsingar fengust beint frá Landspítala, Sjúkrahúsinu á Akureyri, Sjúkrahúsinu Vogi og Meðferðarstofnun Samhjálpar – Hlaðgerðarkoti:
     Geðdeildir Landspítala: Frá því að rafræn atvikaskráning var tekin upp árið 2004 hafa 16 sjálfsvíg og 45 alvarlegar tilraunir til sjálfsvígs sjúklings í meðferðarsambandi við Landspítala verið skráð. Hér er átt við sjúklinga af öllum deildum spítalans. Frá 1. janúar 2007 hafa orðið átta andlát inniliggjandi sjúklinga á geðdeildum Landspítala og voru fjögur þeirra á deildum spítalans en fjórir sjúklingar voru í dagsleyfi. Alvarlegar tilraunir til sjálfsvígs á tímabilinu eru 34 en ekki var unnt að afla upplýsinga um möguleg meiðsl sjúklinganna. Þess má þó geta að þar sem um inniliggjandi sjúklinga var að ræða hefur þeim að öllu jöfnu borist aðstoð hratt og örugglega.
     Geðdeildir Sjúkrahússins á Akureyri: Frá því að geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri var stofnuð árið 1986 hafa fjórir sjúklingar svipt sig lífi innritaðir á geðdeild sjúkrahússins, einn sem var inniliggjandi á deild árið 2012 og þrír sem voru í leyfi frá sjúkrahúsinu á árunum 1986, 2003 og 2010. Enginn hefur slasast alvarlega eftir sjálfsvígstilraun á geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri.
     Sjúkrahúsið Vogur: Á Sjúkrahúsinu Vogi hafa tveir einstaklingar fyrirfarið sér á þeim 40 árum sem sjúkrahúsið hefur verið starfrækt. Það var árin 2014 og 2015. Einn einstaklingur lést af öðrum ástæðum. Enginn hefur slasast alvarlega við sjálfsvígstilraun.
     Meðferðarheimilið Hlaðgerðarkot: Engir skjólstæðingar hafa framið sjálfsvíg í meðferð á Hlaðgerðarkoti eða slasast við sjálfsvígstilraun þar. Seint á árinu 2016 lést einn skjólstæðingur af öðrum orsökum á Hlaðgerðarkoti.