Ferill 40. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Prentað upp.
Þingskjal 566 — 40. mál.
Leiðréttur texti.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um kosningar til sveitarstjórna, nr. 5/1998, með síðari breytingum (kosningaaldur).
Frá 2. minni hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Frumvarpið sem hér um ræðir hefur fengið vandaða umfjöllun í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og gestakomur hafa verið margar og mjög upplýsandi. Í máli margra sem komið hafa fyrir nefndina, þar á meðal umboðsmanns barna, hefur komið fram að nauðsynlegt sé að vanda allan undirbúning og að nauðsynleg fræðsla og kynning standi því unga fólki til boða sem breytingin varðar einkum. Í máli þessara gesta hefur komið fram að of knappur tími sé til undirbúnings fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar.
Verði frumvarpið samþykkt mun það hafa í för með sér einar mestu breytingar á kosningalöggjöfinni sem gerðar hafa verið. 2. minni hluti telur að þegar um svo veigamiklar breytingar er að ræða sé mikilvægt að vanda til undirbúnings og innleiðingar. Brýnt sé að þeir sem breytingarnar varða, þ.e. ungt fólk á aldrinum 16–18 ára, séu vel undirbúnir fyrir aukna þátttöku í stjórnmálastarfi og þjóðmálaumræðu og til að nýta kosningarrétt sinn. Til þess að sem best takist til er nauðsynlegt að skólakerfið efli kennslu í samfélagsfræðum og lífsleikni. Tryggja þarf vettvang í skólum til að stjórnmálahreyfingar geti kynnt stefnu sína og gera þarf kjörnum fulltrúum kleift að nálgast unga fólkið og eiga við það samtal án þess að um pólitíska innrætingu eða áróður sé að ræða.
Sá tími sem nú lifir til sveitarstjórnarkosninga er allt of skammur til þess að hægt sé að vinna að ofangreindum markmiðum og því ekki hægt að samþykkja frumvarpið óbreytt. 2. minni hluti leggur því til að gildistöku frumvarpsins verði frestað fram yfir sveitarstjórnarkosningar 2018 og tíminn fram að næstu sveitarstjórnarkosningum verði nýttur til þess nauðsynlega undirbúnings sem frumvarpið krefst.
Annar minni hluti leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
2. gr. orðist svo:
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2020.
Alþingi, 20. mars 2018.
Þorsteinn Sæmundsson.